blæðandi og særður
að innan allur marður
betur lærður
veit margt sem ég ekki gerði í gær
gávaðri nú
opnari augu
farinn er mín trú
á þig og mig
og alla aðra
fólk hugsar bara um SIG,
tilfinningar eru hilling
ást bara draumur
í lífmunstri okkar
löngu slitinn saumur
mín fyrstu tár í 10 ár
ég lét falla þér hjá
fucking trúði
algjör lúði
mitt seinasta tár fellur mér frá
nú fyrst í raun, ég fólk er að sjá
minn myrkari hluti er kominn á stjá

nú aftur er ég harður
lokaður
held fólki öllu frá
tættur er að innan
hola þar sem ég áður hafði hjarta sem ég hlustaði á
þornuð eru tárin
og hatrið vakið er
einhversstaðer í myrkrinu
sálin í sársauka kjökrar
berst um og nötrar
haldin föst í fjötra

rómantískur fáviti
draumóra fífl
ég var þetta bæði
jafnvel áður en ég hafði þig
en það varst þú sem lést mig trúa
þú sem breyttir mér
gerðir mig að aumingja
sem síðan elskaði
þig meira en sjálfan sig

ég man enn allt sem þú sagðir
í byrjun og í lok
eitt svo fullt af hamingju
en hitt er bara sorg
þú gafst mér öll þín loforð
og ekkert hélt þér burt
en núna allt er horfið
fauk með vindinum
gufaði upp

þú segist ennþá elska mig
með sannfæringu og þrá
en kringumstæður hindra þig
og þú verðir að fara mér frá
halda áfram lífinu
þreytt á þessu, stríðinu
nú þú á beinu brautinn
en ég fer beint á ská

þó tölum við þó áfram
við meira en vinir erum enn
þú með góðum gaur núna
sem þó aldrei nálgast mig
við njótum njótum áfram ,,ásta''
í laun á bakvið tjöld
skemmtum okkur saman
og gerum crazy stuff
ég reindi hvað ég gat
en þrátt fyrir allt
þá gat ég aldrei hatað þig.