Jæja jæja þá er loksins komið að hip-hop kvöldi í Tónabæ, í ár verður hip hop kvöldið í samstarfi við félagsmiðstöðinna Þróttheima. Sind Mc og Mælginn Mc eru að skipuleggja þennan þrusu viðburð. Þetta verður í félagsmistöðinni Tónabæ og byrjar þetta klukkan 19:00. Fyrst þetta er nú félagsmiðstöð þá er auðvitað ekkert aldurstakmark(13 ára) og öll notkun áfengis og annara vímuefna bönnuð. Milli atriða einhvertíman þarna verður open mic og Dj M.A.T. verður dj kvöldsins. Og frma koma:
Hinir dæmalausu
Akademian
Vitfyrring
STRÍÐSMENN
SIND MC
Igor
Heimskir Synir
Marlon (ásamt gestum eða eithvað)
Mezzias Mc, Bangsi, Brjánsi og M.A.T.

Kostar í mesta lagi um 200 kall en það kemur í ljós á mánudaginn.


Sind Mc Og Mælgin mC