ég bylti mér í svitakófi hverja nótt, flæktur í þvöl rúmföt í öru flökti milli svefns og vöku við tilhugsun sem sækir stíft að mér á kvöldin þegar erill daglegs amsturs líður mér úr huga:

Hvað kostar FL platan og er hún komin í verslanir?

Og hver pródúserar? mikill meistari þar á ferð tel ég.

Sveitin eins og hún leggur sig er nánast það eina sem blífur í aumu hip hop landslagi þar sem meðalmennska er almennri en í sovétinu forðum, strítt flæði er fáheyrðara en skorpinni Góbí eyðimörkinni, tónlistin er óvandaðari en 10 ára Hyundai bifreið og áreynslulaust rapp án öskra og skrækja er forboðin list.

En ekki að FL séu einungis góðir sé miðað við samkeppnina og þetta skítkast mitt á síkvika og virka hiphop senuna hérlendis (þar sem magn yfirgnæfir gæði eins og fullvaxta ljón kettling) er í raun óþarft. Drengirnir eru einfaldlega góðir óháð öðru og öðrum.

Kudos frá mér í Kudos-sparigrísina þeirra (ætti að vera vænn sjóður).