ég er þreyttur á láta segja mér fyrir fokkin verkum
ég læt ekki koma fram við mig eins og ég sé þroskaheftur
þessar óskrifuðu reglur eru stórlega misskildar
spennitreyjur bara girðingar fyrir vit ykkar
ég fer ekki bakvið rimlana fyrir að kjósa syndina
beygji mig ekki fyrir konungshirðina, virðið það
ef ég bíð álitshnekki, fínt, gott mál, þannig við höfum það
áður en ég veit kunna allir fokkin sögurnar
kjaftatíkur útum allt hvenær haldiði kjafti??
þið þekkið ekkert vitið ekki skít sögur á færibandi
þetta er punkturinn með þessu, fólk virðist heilaþvegið
leiðinlegir menn í jakkafötum eru að eignast heiminn
fólk er með fóbíu gangvart því sem að það langar
situr heima baktalar þá sem að þora þangað
ég ætla ekki að smjaðra fyrir ömurlega meirihlutanum
þess í stað fá þau séns til að dást að miðjuputtanum