Vinkona mín sagði mér um daginn að horfa á nýja Quarashi myndbandið og taka eftir stráknum í græna bolnum, með sólgleraugun!!
( ég veit ekki mikið um þá, nema að þeir eru tónlistarsnillingar)
en hún spurði mig hvort að það hafi verið hann sem lék annað hvort Jón Odd eða Jón Bjarna í samnefndri kvikmynd!! Veit einhver hvort þetta passar, ég er búin að leita um allt á netinu en finn ekki hvort það er satt.

Alla vega er munnsvipurinn mjög líkur!