það munu ekki öllum líka þessi texti… but here goes everything.

ég veit að þetta er ekki rétt en ég umber þetta ekki lengur /
þetta étur mig að innan skilur sál mína eftir í henglum /
ég hef ekki fundið fyrir þessu í 10 ár og nú kemur þetta óboðið /
mér hefur langað að segja þér þetta en hef ekki komið frá mér orði /
kýs frekar að byrgja þetta, þar til þetta verður mér að bana /
lokaður, tilgangslaus, kvalinn en get ekki sagt þetta við hana /
ást byggist ekki upp við fyrstu sín, ég veit hvað þú meintir /
ég er búinn að byggja þetta upp of lengi, það er sama hvað ég reyni /
ég get ekki losað mig við allt sem kvelur mig, það sem þú segir /
þú ert sú fyrsta sem ég ber þessar tilfinningar til síðan í 2. bekk /
að þurfa að hlusta á þín ástarmál, hugsa um þig gefur mér höfuðverk /
líf mitt tók lit eftir að ég kynntist þér, hamingjan var ólýsanleg /
kann ekki betri leið til að sýna þér, í gegnum ljóð fær það að lýsa sér /
gegnum blóð mitt muntu sjá, í gegnum ljóð mitt muntu ná, að tengja saman /
ég sakna þessarra góðu stunda, vil bara að við gætum átt eina saman /
vil bara geta komið þér í gott skap eins og ég gerði í byrjun /
allt er nú að fara í pytt, ég veit að það það er ekki það sem við viljum /
ég er svo hræddur um að þú hendir mér frá þér og skipir mér að fara /
að þú viljir ekkert með mig hafa, eða að þér sé kannski bara drullu sama /
ég veit ekki hvað það er í þessum heimi sem gerir þig svona undur fagra /

chorus:
við tengdumst böndum, ég finn þau eru að slitna /
ég sit eftir, orðin í loftinu, komin með festu /
ég læsi böndin í lófum mínum, en ég finn ég er að svitna /
aldrei til baka snúið, ánægður með að vera búinn að þessu/

ég er sá sem mun ganga í eldinn fyrir þig, til að sjá hvort hann sé heitur /
ég er sá sem mun smakka það sem óvinir gefa þér, til að sjá hvort það sé eitur /
ég er sá sem mun gefa þér hægri hönd og ekki hika við stökkva fyrir skotið /
ég er sá sem mun gæta þess að engu sem þú átt verði stolið /
á hverjum morgni hugsa ég um þig og get ekki hætt því þótt það kvelji mig /
ég hugsa um fegurð þína, og að það kemur aldrei til þess að þú veljir mig /
á hverju kvöldi ligg ég andvaka, samtaka með þessum tilfinningum dey ég /
ég er ekki að segja að ég haldi þetta, ég elska þig af öllu hjarta það veit ég /
bara það að þú hringir í mig og villt eyða tíma í mig drepur niður kvölina /
en þegar leið okkar skiljast, er eins og ég standi við gröf þína /
þú segist treysta mér, treystu mér, ég mun aldrei svíkja þig, ég mun aldrei hryggja þið /
ekki hlæja af þér þótt þetta sé lame, því að í þessu er ég bara byrjandi /
mér er sama hver stendur í vegi mínum, það mun enginn geta hindrað mig /
ég skal standa við bak þitt og deyja fyrir þig og ég geri það viljandi /
ef þú deyrð mun ég eyða restinni af ævi minni liggjandi á leiði þínu syrgjandi /
ef þu flytur úr landi mun ég fylgja þér á áfanga stað, elti þig syndandi /
þú veist ekki hvað áhrif þú hefur á mig, með þér líður mér vel, án þín líður mér illa /
ég hef aldrei borið svona sterkar tilfinningar til neins, og þær eru ekki að minnka /
vina ást? þetta er meira en það, þar sem þú deyrð, eg vil deyja þar, ég vil skilja þig /
þú minnir mig á að enginn vilji mig… ef þú villt mig ekki, hver mun þá vilja mig

<br><br>“Jarðaru mig með þínu lagi? bidd'um griðastað/
eins og blankur maður, þarft'að láta skrifa'ða” JonniJafnhár

“Skot mín á þig eru alltaf með réttum hnitum eins og hjá skyggn manni í battleship/
ég er eins og flókið dæmi, rapparar hugsa sig 2var um áður en þeir battla mig” JonniJafnhá