Eins og ég er nú ánægður með hvað hip-hop tólistin er búin að vera að rjúka upp á fáum árum er alltaf viss hluti sem er að gera mig brjálaðan og það eru textarnir og meining þeirra, endalaust kjaftæði ofaná kjaftæði.
Talandi um að vera glæpamenn og að ætla að drepa þennann og hinn.
Þó að rapptónlist úr gettóum bandaríkjanna sé mesti áhrifavaldur rappsins á Íslandi er algjör óþarfi að éta gjörsamlega allt uppeftir þeim. Það er alveg eins og menn hér á landi séu að þýða texta eftir erlenda listamenn sem búa í alltöðru umhverfi og annari menningu. Það getur gert mann geðveikan að heyra ótrúlega flotta tónlist eyðilagða með grunnum og heimskulegum textum um ekki neitt, ég myndi kalla þetta rímur ef það væri eitthvað rím í þessu.
Ef menn geta ekki verið frumlegir og sagt eitthvað sem skiptir máli þá eiga þeir að þegja.

Ég er ALLSEKKI að tala um alla rappara á Íslandi, en það eru of margir sem passa við þessa lýsingu.

Takk fyri