Ég er MC Tannlaus, já ég er bara byrjandi/
ef þú vilt ráð um textasmíði, ekki spyrja mig/
þú ert heppinn ef þú færð mig til að virða þig/
en ef þú pirrar mig, þá á ég eftir að myrða þig/
ég stefni að því að verða góður, vinsæll rappari/
en það er soldið erfitt þegar fullt af fólki hatar mig/
en ef ég fæ flott beat þá spýti ég flottum skít/
ég er miklu betur staddur ef fólk biður um beef/
ástæðan fyrir því er að frændi minn á Kjötbankann/
svo ef einhver stígur gegn mér, skýt ég göt á hann/
mér finnst ég fá góða útrás við að semja rímur/
því ekkert er betra heldur en skemmtilegar línur/
en tíminn líður og í pottinum mínum sýður/
þessu versi lýk ég, pylsa í brauði mín bíður…

Chorus 2x:

Ég ætla að komast langt og vil ekki vera stoppaður/
mitt rímnaflóð gusast yfir þig svo fokking blotnaðu/
rotnaðu, á meðan ég held áfram að komast ofar og ofar/
ég bíð og vona, vil komast á toppinn en get engu lofað…


Hef verið stutt í hip-hopi en hef samt tekið framförum/
farið hamförum, þróast svipað mikið og fartölvur/
en ég hef aldrei tekið upp, semsagt ég sökka feitast/
langar að breytast í góðan rappara, ég þrái það heitast/
ég er svipað lélegur í rappi og ég er í hornabolta/
ég á minni framtíð í rappi heldur en John Travolta/
samt held ég áfram að reyna þótt það gangi ekki vel/
The real SlimShady er góður rappari en ekki ég/
hvar og hvernig tek ég upp, það væri gott að vita það/
að skrifa texta og birta hann, er ekki alveg að virka ha/
það gerir ekkert gagn að pósta á huga en ég geri þetta samt/
því það er gaman og um það snýst þetta, ekki satt/
en það er enginn boðskapur í þessum texta og þú veist það/
málið er að ég er MC Tannlaus, ég er agnið og þú beist það…

Chorus 2x:
<br><br>Þetta er stolin undirskrift