Ég sest niður með mínar hugsanir og blað og grip í blýantinn/
Ég vil ekki hljóma óákveðinn en ekki heldur þvingandi/
En ég er ekki kaldlyndur, svo ekki taka mig sem harðan emsé/
Og ekki búast við of miklu þetta er bara ég/
Ég á ekki erfitt með að tjá ást mina, en veit ekki hvort ég sé ástfánginn/
Ég sé aðeins blindgötu fram undan en ég lít þá-á-þig/
Af hverju þarf ég að vera svona feiminn? Bar´af því/
Þori ekki að sleppa takinu af þessari tilveru ef ég kemst ekki í paradís/
Mér finnst best að þaula þetta í mæk, þá síast tilfinningar út/
Efast um að ég geti elskað þig í blíðu og stríðu, hvað þá í gegnum sætt og súrt/
En ef svo er, þá gott og blessað, það verur að kom´í ljós/
Ef ástin væri námslestur er ég ekki tilbúinn í lokapróf/
Verð að fá smá frest, til að koma þessu á hreint í huganum/
Því ef þetta er bara neisti, held ég að það myndi duga stutt/
Mig hungrar í að vita hvort þér líði eins, þá yrði ég mettaður/
En hvað er ástin eiginlega, ég veit ekkert hvað ég er að semja um/
Ég vil vera viss , því ég vil ekki lenda í hjartasorg/
Því ég hef nú þegar upplifað ósigra, ég hef þegar tapað tapað oft/
En þó ekki á þessu sviði, ég er að taka mín fyrstu skref/
Svo ég rata ekki einn, vertu svon væn, fylgdu mér/
Myndum við fylgjast að langan veg eða myndu leiðir skiljast fljótt?/
Tekuru þátt í þessu með mér? Eða hefuru nú þegar spilað nóg?/
Ég gef fagurri stúlku orð mín, geri þetta fyrir þig/
Það eru kannski fleiri fiskar í sjónum en ég stari uppí himinninn/<br><br>_____________________________________________________

Er hægt að taka mark á nokkrum manni með undirskrift?