Ætlastu til þess að ég nefni á nafn rímu mína/
Sjáðu bara um að búa til eigin og finndu nafn á rímu þína/
Því þessar línur munu standa út úr venjulegu orðalagi/
Afhverju? Því ég er atvinnumaður í mínu fagi/
Þú byrjar að svitna og getur ekki hreyft þig/
Slefar og stendur, eina sem þú gerir er að horfa á mig/
Stendur með mic-inn í hendinni og hreyfir þig ekki/
Sjálfsálitið hjá þér er farið í allskonar kekki/
Allir öskra: Choke Choke og þú stendur grafkyrr/
Kanntu ekki að tala? Afhverju sagðiru það ekki fyrr/
Því fólkið er hér mætt til að hlusta á þig battla/
Ekki horfa mann fara heim með eina hendi í fatla/
En mundu það næst þegar þú skorar á gaur/
Að enda ekki eftir einsog illa lyktandi saur/
Því það á til að koma fyrir þegar þú frosnar/
Rímur þínar búnar og undir þrýstinginum losnar/
Eitt ráð við því ef þú vilt ekki lenda í þessu:
Farðu með mömmu þinni og pabba í sunnudags messu/
Því þá sleppiru við battl keppni einsog þessa/
Stutt ráð frá mér: Þú skalt ekki við mig messa…