ertu dapur litli maður?/
það er ekki sniðugt að drepa sig/
helvíti er ekki notalegur staður/
sestu á þennan stól, ég skal fræða þig um lífsins vegi/
ég veit manna best/
að það er ekki sól á hverjum degi/
ég er ekki gamall en hlustaðu á það sem ég segi/
og talaðu við mig, ég segi engum neitt/
þetta verðu á milli mín og þín/
en vinur vita skaltu eitt/
að lífið snýst eki um dóp, gellur og kampavín/
ef þú heldur að ég skilji ekki,/
ég þekki þetta allt,/
ég er búin að gera sömu mistök og þú/
bara margfalt verri/
jú, ég veit þessi raunveruleiki er það eina sem við þekkjum/
við erum fastir í samfélagslegum hlekkjum/
þykkjumst vera harðir, en þeir einu sem við blekkjum erum við sjálfir/
tilfinningum okkar og syndum drekkjum í alkahóli/
vöknum aldrei tvo morgna í röð í sama bóli/
erum fastir í hjóli lífsins, sem snýst í endalausa hringi/
og bíðum vonlausir eftir því að feita konan syngi/

framhald síðar…

feedback please, peace out…