fyllist lotningu þegar að ég sé hann/ svona almáttugann/
líkaminn blóðugur og hnífur í bakinu/
ég er orðin vinsælasti maðurinn á svæðinu/
myrtur komandi út úr bíl á miðju bílastæðinu/
fólk hópast í hring til að sjá vetvangin á morðinu/
líkami minn ennþá á jörðu niðri/
sálin flogin af svæðinu, vonandi hvíl hún í friði/
nú komin til himna að skrá sig inn hjá guði/
Lyklapétur hleypir mér inn um gullna hliðið/
hann lánar mér sjónauka til að líta á gamla staðinn/
ég sé allt sem ég vil, sé morðingja minn hlaupandi í hraði/
blóðugur með með margar syndir á sínu baki/
lögreglan á eftir honum……..hann fyllist hatri/
vonandi nær þessi maður sér einhvern tíman af sinni veiki/
morðóður, það skaðar hann meiri ef hann er lokaður inni/
synd og skömm hvernig sumir einstaklingar fara í okkar fangelsum/
betra að þeir fái hjápina sem þeir þurfa hjá fagmönnum/
besti fagmaðurinn er hérna uppi, guðinn sem fyrirgefur allar syndir hjá veikum mönnum/
stelpur í of stuttum pilsum…Yeah