Skrifa mínar rímur niðrá blað og reyni með bestu getu að vanda mig/
reyni ekki að komast lángt áfram en það er einginn sem veit framhaldið/
allir vilja komast hærra og hver hefur sitt sæti sem hann þarf að hertaka/
ég bý bara til tónlist og það þarf ekki neinn einasti að sýna mér seðlana/
geri vitleysur í ógáti/ að það sé sýnt mér athygli mér finnst nú ekkert bóla á því/
framtíðinn er óráðinn/ og ég er kanski óþekktur en ég nota tíman til að skóla mig/
reyni að fylgja straumnum og ef ég dregst aftur úr þá verð ég bara fljótari/
ég reyni að halda mig á jörðini og ef ég æsist upp í vitleysu þá reyni ég að róa mig/
með hiphopið á heilanum reyni ég að gera mitt besta/ af öllum mínum kröftum/
ég bið bara það eina að geta farið með mína texta/ feingið afnot af góðum töktum/
reyni að fá virðingu reyni að koma efni frá mér og ég reyni líka að sýna hæfni/
vill bara geta horft stoltur á mín verk eins og Evilmind eftir að hann vann rímnaflæði/
sest niður með blað og penna í hendini og hugmyndirnar byrja að hellast í mig/
er oft á leiðini að falla en það sem heldur mér gangandi og það er mín textasmíði/
ég hángi alltaf á sama helvítis staðnum og ég heing þar á bláþræði/
en þar sem ég er lýður mér allveg ágætlega þó ég gæti þess vegna verið ánægðri/
get ekki haldið neini reglu og orðið sem ætti nú að lýsa mér best er óreiða/
en það eru svo margir á miklri hraðferð,ég halla mér aftur og tek því bara rólega/
reyni að gera vandaða hluti en mér finnst ég bara ná að gera þá í fljótfærni/
vill ekki vera vanvirtur en mig langar að það væri sýnt mér virðing og góðlæti/
<br><br>ég kem inn ég kem inn ahhh fokk it ég fer aftur út/