Ég gerði þetta eitt kvöld fyrir stuttu, pæling hvort ég vinni frekar í þessu.

Köllum okkur Amateurs hah, berum það varla með rentu/
ekki það að við séum með þeim bestu, vildum bara hafa nafn á ensku/
var ekki mikið vit í okkur þá, headbangin við E-jay takta/
okkur fannst það vera töff, get ekki sagt að þess skíts sé saknað/
stíllinn breyttist með tímanum, féllum til jarðar sem ofþroskað epli/
opnuðum augun, sáum hafið, þar gat auðveldlega sloknað á okkar eldi/
héldum þó ótrauðir áfram, hægðum ekki á okkur á leiðinni/
töldum okkur í byrjun sérstaka en þarna voru miklu fleiri en við/
en einsog ég sagði þá þróaðist stílinn með festu og ákveðni/
vorum fyrst fleiri, misstum við veikan hlekk þegar við skildum þá eftir?/
þetta varð hægt og hægt flóknara ég fór að ríma með atkvæði/
og ég sem fullviss meira og meira veit fyrir vissu að það bætist/
er ég sérstakur? sver mig úr hópnum eða er bara einsog aðrir?/
en lýk þessu með mínum einkennum þegar ég krota fyrir neðan nafn mitt/
Mc Brisk
<br><br>____________________________
Stop Posting Wack Shit!!!!!!