Jæja þá er Ja Rule víst farinn í frí. Hann er ekki búinn að vera að gera góða hluti undanfarnar vikur, platan hans seldist illa og svo er hann alltaf að grafa sér dýpri og dýpri gröf með því að dissa alla í kringum sig. Persónulega finnst mér að litli maðurinn hafi ekkert á efni á því en hann hefur verið að skjóta á 50 cent, Eminem, Dr. Dre, Busta og fleiri. Aðdáendur Ja eru víst búnir að snúa baki í hann og hafa tekið erkióvin hans 50 cent opnum örmum. Þá er það bara spurningin hvort heimurinn muni hafa einhvern áhuga á honum eftir 6 mánuði…