Einhvað sem ég gerði í gær og í dag .. Endilega segjið mér ykkar álit, hvort sem það er slæmt eða ekki…



[verse1]
líf mitt nánast svart, sá ekki handa minna skil
eyddi allri ævinni, í það eitt að finna þig
ástin skylirðislaus, og ég elti þig í blindni
endaði allt á einn veg, ég í botnlausum sorgum syndi
þú varst mér allt, í hjarta mínu kveiktir ljós
gaf þér allt sem ég hafði að gefa en þú sveikt mig þó
ég veit að ég mun á endanum leita á eftir þér
en þú verður að lofa, að neita þá ekki mér
ekki leika þér, að sáru sálar sári mínu
stalst mínu hjarta, ég vona að á endanum ég nái þínu
mun fórna öllu, binda endi á alla mína drauma
til þess eins, að fá að falla í þína tauma
ég treysti þér, er ég stillti mitt hjarta samkvæmt þínu
hvað er fólk að væla um brostið hjarta þegar þú hefur rænt mínu ?
og ránsfenginn, tókstu með þér til himna
hvernig á ég nú, hjartalaus þig að finna ?

[chorus]
leita nótt sem dag, að staðgengli þínum
lifi í von um hann, vil ei vakna af draumi mínum
við áttum samleið, en þú fórst þinn eigin veg
sama hvernig mér leið, og sorgbitinn þegji ég
yfirgafst mig, þennan kost einfaldlega kaust
og nú er ég dæmdur til að arka um jörðina, hjartalaus


[verse2]
horfi á myndirnar, hugsa um hvað allt verið hafði gott
horfi á þig brosandi, og svo á pilluglasið tómt
sofna værum svefni og flyst snögglega inn í paradís
ráð í boði örvæntingar, til þess að leita bara þín
skyndilega stendur þú við hlið mér, sé allt í nýju ljósi
stendur við hlið annars mann, nú er fallin rósin
var ég einhverntímann þinn? eða lifði ég í sjálfsblekkingu ?
sá þig öðruvísi, nú grímu af réttu andliti flettiru
var ég aðeins leikfang? í þínum dótakassa?
eða var ég einhvað meira? inn í þínu mikla hjarta
þú grætur, nú heyrast innantómar afsakanir
og án allrar umhugsunar, sný ég við þér baki
engin sorg, aðeins reiði og ekkert tár fellur
himnaríki helvíti, heim leita ég þá heldur
held leitinni áfram ráðþrota, rata ekkert um himna hallir
ný tilfinning, nú vona ég aðeins að ég vakni ..


[chorus]
leita nótt sem dag, að staðgengli þínum
lifi í von um hann, vil ei vakna af draumi mínum
við áttum samleið, en þú fórst þinn eigin veg
sama hvernig mér leið, og sorgbitinn þegji ég
yfirgafst mig, þennan kost einfaldlega kaust
og nú er ég dæmdur til að arka um jörðina, hjartalaus


Kommentið þetta plz, þarf að fá að vita hvar ég stend :D
laters …
Undirskrift sem þú vilt hafa í lok hvers pósts á korkunum. Aðeins 1024 stafir leyfðir, allt framyfir þeirri takmörkun verður klippt af.