Var aðeins að pæla í gömlum vin… Annar textinn sem ég pósta.. Please comment..

getur ekki sofnað
heilabúið klofnað
raunveruleikasambandið rofnað
error ástand stofnað
andvaka á miðri nóttu, fullur eirðarleysi og armæðu
vaknar alltaf upp úr matröðum með miklum andfælum
þarft að fara til geðlæknis, því við ekki andmælum
vælir utan í öllum, með meiriháttar harmkvælum
með stóru B-i þú Bölvar bara öllum þínum vinahóp
geðveikin magnast og þú rekur upp bæklað hræðsluóp
þú veist að þetta getur engan veginn talist eðlilegt
festist í eigin hugsunum og finnst lífið ekkert merkilegt
sérð fyrir þér fyrirsagnirnar, hann dó, hann var svo frábær
þú ert geðveikur, það vita það allir, þú býrð í fucking smábæ


(2x)
í geðveiki, í algleymi, í öðrum heimi þú reynir
að brjóta þetta andstreymi í hundrað prósent brjálæði
í mótþróa, í óróa, þú segir “mamma þín er hóra”
alla aðra fáfróða en sjálfur yfir aðra hafinn


tekur upp símann og skrifar öllum sama ess emm ess-ið
segist ætla að drepa þig, en þú átt enga vini eftir
þeir urðu allir leiðir á þessu sífellda röfli
um sjálfsmorð og vitleysu sem býr aðeins í þínu höfði
á endanum verður einhver alveg orðinn á þér vitlaus
hringir á geðdeild segir að það sé eitthvað að þínum sjúka haus
þú neitar öllu og segist vera heilbrigður einstaklingur
en eftir geðmatið sést að það vantar í þig allnokkrar línur
en það er ekki eitthvað sem þú ert tilbúinn að viðurkenna
að vera lagður inn og láta þig kefla niður og spenna
í treyju með ermum sem að ná niðrá gólf, þú segir það muni þig skemma
æ hættu þessu kjaftæði, að hlusta á þetta væl er enginn lengur að nenna

(1x)
í geðveiki, í algleymi, í öðrum heimi þú reynir
að brjóta þetta andstreymi í hundrað prósent brjálæði
í mótþróa, í óróa, þú segir “mamma þín er hóra”
alla aðra fáfróða en sjálfur yfir aðra hafinn

lokaður inni á stofnun ert farinn að tala við einhverja gaura
sem enginn annar sér, þúrt jafnvel farinn að borða maura
það vill enginn með þig hafa því þú ert gersamlega lost
þú reynir og reynir að þræta, en þú átt engan annan kost
uppdópaður af geðlyfjum, í furðulegum heimi
fastur í eigin hugsunum eins og lokaður inní steini
næst ekkert samband við þig, sama hver er sem reynir
heitir Jón og ert Jónsson, en heldur sjálfur að þú heitir Heimir
það býst enginn við því að þú vaknir nokkurntíma aftur
en ef það gerist þá býst ég við að það segi hver einasti kjaftur
djöfullinn vona ég að hann detti fljótlega út aftur
hann á ekki heima með heilbrigðu fólki, helvítis fylliraftur

(2x)
í geðveiki, í algleymi, í öðrum heimi þú reynir
að brjóta þetta andstreymi í hundrað prósent brjálæði
í mótþróa, í óróa, þú segir “mamma þín er hóra”
alla aðra fáfróða en sjálfur yfir aðra hafinn

hættu þessu kjaftæði annars verðuru tekinn og illilega barinn….

Thakk fhyrir mhig…<br><br>-State of mind… I'd like to go there someday-
-State of mind… I'd like to go there someday-