Smá texti sem ég skrifaði í nótt, er að posta hérna í fyrsta skipti, plz comment.

áttavilltur, orðinn trylltur á þínum hugans órum
hugsar ekki um annað en að taka á nokkrum hórum
eyðir öllu sem þú átt, og það var ekki mikið
fyrir einnar nætur gaman, ferðu alltaf yfir strikið
með kynlíf á heilanum þú veist þér ekki takmörk
ef þú færð ekki að ríða í sólarhring gætu allteins komið ragnarök
situr inná strippbúllum, og rúnkar þér undir borði
segir konunni, ég vann yfirvinnu, hún trúir ekki orði
hefur ekki tölu á öllum kynlífsfantasíum
sem þig dreymir um að framkvæma með 18 ára píum
meðan konan situr heima og horfir á sápuóperu þætti
hún ætlar að henda þér út, það er sama hvað þú þrætir

skuldugur uppfyrir haus, útaf vandamálum þínum
tekur tvær þrjár kellingar og býður þeim uppá línu
þær myndu aldrei umgangast þig nema fyrir borgun
og þú veist þú leikur sama leikinn á sama hátt á morgun

uppfyrir haus, í endalausum skuldum
brotið hjónabandið, með hatursorðum þuldum
kellingin var hvorteðer löngu hætt að vilja kynlíf
en helvítis tíkin, hún varð að hirða þinn bíl
með tárin í augunum labbar inná næstu búllu
horfir á strippara, snúast í kringum súlu
drekkur, og spíttar, ert alveg að snappa
reynir að drekkja sorgum þínum, á taugakerfinu stappar
endar útá götu með flösku í annari hendi
dísus, sjáðu rónann, segir fólk og bendir
situr á ingólfstorgi fólk í þig klínkinu sínu hendir
með þessu áframhaldi, í gröfinni þú lendir

skuldugur uppfyrir haus, útaf vandamálum þínum
tekur tvær þrjár kellingar og býður þeim uppá línu
þær myndu aldrei umgangast þig nema fyrir borgun
og þú veist þú leikur sama leikinn á sama hátt á morgun

minningagreinarnar, um þig er ekkert skrifað
sex fetum undir, er orðinn þinn griðar
staður, nú ertu loksins laus frá vandamálunum
það var margoft reynt að segja þér að halda þig frá nálunum
handleggurinn á þér var orðinn eins og gatasigti
frekar en handlegg á nálapúða minnti
til himna eða helvítis þarf að spyrja hvert þú farir
það er vitað fyrir víst að uppá himnum þú ekki lengi varir
í eilífðarloga vítis þú brennur
svona er víst lífið, ef aldrei af þér rennur

skuldugur uppfyrir haus, útaf vandamálum þínum
tekur tvær þrjár kellingar og býður þeim uppá línu
þær myndu aldrei umgangast þig nema fyrir borgun
og þú veist þú leikur sama leikinn á sama hátt á morgun
kominn til himna og mér finnst það ekkert skrýtið
drakkst áfengi og dópaðir og það var ekkert lítið
með kynlíf á heilanum kominn sex fetum undir
áttaðir þig á því að þú áttir engar góðar stundir… Aldrei..


Thakk fhyrir mhig ..<br><br>-State of mind… I'd like to go there someday-
-State of mind… I'd like to go there someday-