Þar sem nú er langt liðið á árið og ekkert Hip Hop kvöld hefur verið enn þá langar mig að benda á eitt stórgott crew, sem Robbi veit eflaust af en það skaðar ekki að leggja inn gott orð.
Crewið sem ég á við er Definitive Jux. Að margra mati það heitasta í óháða geiranum í Hip Hoppinu í dag, Def Jux státar af ekki minni mönnum en Aesop Rock,Rjd2, El-P og Cannibal Ox, Mr Lif, Camu Tao og fleirum. Þar sem lítið er minnst á þetta lið hér á hiphop þá fannst mér rétt að benda á að þeir eru allmargir sem víldu ólmir sjá Aesop Rock (að mínu mati besti MCinn í dag) eða Rj eða Mr.Lif mæta á Gaukinn og stytta okkur stundir í skammdeginu.
Þannig það er bara um að gera að reyna koma Def Jux crew á Klakann árið 2003!
-km