Þessa rímu skrifaði ég þegar ég er byrjaði að finna fyrir stressi í sambandi við battl-keppnina. Fyrsta vers samið á miðvikudegi, svo á fimmtudegi, svo fyrir keppni og svo lokaorðin eftir keppni…

njótið..

Miðvikudagur
Las á huga að það er að koma battle keppni
ég skrái mig til þess einz að sanna mig
mun ég standa mig, mun ég vinna einhvern
mun ég jarða mig, eða mun ég spitta feitt vers
styttist í dæmið stressið ætlar að drepa mig
ég efa mig, ætli ég ég sé hæfur keppandi
ég gæti beilað, sleppt þessu öllu, flúið
en þá dræpi ég von á tækifæri, búið
hlupið í burtu með skottið á milli lappana
myndi þá einhvern taka mark á mér sem rappara
ég verð að battla mar, núna eða aldrei
ég gæti verið faceless netcee ne´eg kaus að-raleið
ég bara vona að ég stressist ekki of mikið
og komikki orði upp þegar ég stíg á sviðið
tveir daga til stefnu mig hlakkar þó ekki til
því ég verð eflaust fljótt drepinn fyrst af dómnefndinni

– tveir dagar til stefnu, ég og aðrir etjum -
– keppni já við keppum, reglur niður setjum -
…. og svo face to face við KEPPUM

Fimmtudagur
Fimtudagsnóttin lengist og lengist virðist endalaus
þetta raus er ekki stefnan sem ég kaus
mig þyrstir að spitta shittið mitt upp á sviði
en ég vildi skrifaða texta svo ég gæti preppað mig fyrir
en ég er búinn að velja, það er að duga eða drepast
er ég sjálfan mig að kvelja, nei þetta er minn séns frekar
en hvað ef ég kafna, kem ekki upp orði
falla strax, í neðsta sæti hafna, engin orðaforði
er það þess virði, baráttan um virðingu
að ég myrði mig með því að klúðra öryrkingu
ég verð að standa mig, vera betren þeir
en einzog að enda regnbogans það er enginn leið
þó þú sjáir mig tilbúinn til að negla þá
er nú þegar má, sjá mig efast já ég reyni samt að blekkja þá
þetta byrjar á morgun sjáum hvað setur
ég vil enga vorkunn, gáum hvor getur (betur)

– Einn dagur til stefnu, ég og aðrir etjum -
– keppi já við keppum, reglur niður setjum -
og svo face to face við KEPPUM

Föstudagur
Ég stefni ekki á sigur bara að kafnekki
ég er með mad-efni en því miður samt ekki
ég hef aldrei talið mig góðan battlara
en nú er að standast eða falla strax
keppnin er að byrja, ég þarf að öryrkja
ég og kei tökum battlið fyrsta
ég byrja, ég þarf að spitta …
-fyrsta lotan ég virðist hafa yfirhöndina
en í næsta rándi breytist ég í fokkin aumingja
kjaftstopp … og svo jarðaður
kjaftstopp … felltur, tapaður
búinn að missa af mínu tækifæri
fjarlægist mækinn ríf í sundur upptöku tækinn
ég gat ekki einu sinni tekið út EINN rappara
og núna FOKK ÞAÐ ALLT, ég fokkin hata rapp

– ég kafnaði, komiggi upp orði -
– og núorðið, fokk sviðið! og FOKK ÞIÐ!
– ég kafnaði, komiggi upp orði -
– og núorðið, fokk sviðið! og FOKK ÞIÐ!
– ég kafnaði, komiggi upp orði -
– og núorðið, fokk sviðið! og FOKK ÞIÐ!



droppið commentz if ya´ll feel like it. Aight
<br><br><a href="http://fearz.blogspot.com">thugblog dauðans!</a