Hvaða, hvaða, hvað á nú þetta að þýða? Maður póstar hér fullkomlega bærilegum og auðskiljanlegum korki þar sem fólki gefst tækifæri á að dissa mann og annann og svívirða rappnáunga sinn, en það kemur ekki bofs upp úr einum né neinum: það er eins og allir séu fastir í ógnarjafnvægi laustengdrar klíku sem samanstendur af öllum sæmilega viðurkenndum grúppum klakans og að þeirra á milli megi ekki fyrir nokkra muni ganga nokkurt ókvæðisorð (með hinum augljósu undantekningum; Igor, Steingervingur og hvað, MC eddi(?)).

Þannig að þó Dóra DNA þykji ef til vill Erpur hljóma eins loft að þrýstast út um gat á blöðru og Opee hafi liðið vítiskvalir við að hlusta á lagið “hættað hringja í mig” með AG, og jafnvel þótt elvar myndi frekar binda sig við kynlíf með örbylgjuðum vatnsmelónum með haganlegum götum (annars ekki svo slæm hugmynd…)það sem hann á eftir ólifað heldur en að þurfa enn einu sinni að hlusta á helíum vælið í tiny, þá segir engin neitt…

en svo getur náttúrulega verið að allir séu hrifnir af öllu með öllum, og hiphop flóra landsins sé einskonar hálsaskógur þar sem öllum nægir að skíta svolítið á Igor þegar þeir verða leiðir…

Ræææææææt…