Hvað gerist eiginlega, hvað mistekst mér í raun?/ reyni og reyni en get samt ekki baun

ég get ekki verið fræg fyrir að vera sæt og flott/ en hvað gerir mig samt frábrugðna erp og beturokk?

af þeim að dæma er pointið að vera lauslát drusla/ drekka eins og svampur og valda sem mestum usla

er það málið að gera þetta þrennt?/ hef oft gert þetta og í öllu þessu lent

*ahh* skil'þig hefð'átt að fatt'það fyrir löngu/ svo augljóst, ér greinilega að höstla þá röngu…

Ég sé hvernig stjörnurnar falla af himnum ofan/ vellíðatilfinning en deyfir ekki doðann
doðann og sorgina yfir að hafa verið þarna/ hafa hrasað og hrapað en ver'enn ekki stjarna

Allir þessir frægu, hvað hafa þau gert?/ haf'ekki gert rassgat til að verða þekkt/ en allt sem ég geri, það er einskisvert?

ég skal sitja fyrir allsber og leik'í klámmynd/ ger'allt fyrir frægðina og nekt er engin synd

spinn upp sögu, kem á forsíðu séð og heyrt/“<i>hef selt mig verið í dópi en nú er allt breytt/ á loksins fyrir mat og er læknuð af aids</i>”

frekar geng ég til liðs við ígore og sýni á mér brjóstin/ rúlla yfir frikka með færni minni á barstólinn

sýni á mér líkamann í öllum krókum og kimum/ geng svo í burtu og veifa stórum rassinum…

Ég sé hvernig stjörnurnar falla af himnum ofan/ vellíðatilfinning en deyfir ekki doðann
doðann og sorgina yfir að hafa verið þarna/ hafa hrasað og hrapað en ver'enn ekki stjarna

En keep it real, ég skal sleppa öllu bulli/ ígors frægð er hjúpuð glópagulli

ég tek bara upp myndband og sendi á popptíví/ geri það vinsælt að hætti r'n'b/ með olíubornum gaurum og ég rapp'í bikiní

sé einar ágúst kynna lagið og gagnrýna íslenskt rapp/ “<i>ófrumlegt ömurlegt innantómt og tótalt crap</i>”

hey fuck off, ég þó sjálf mína texta sem/ “<i>en leyfið mér að kynna, hér er <b>femÍnem</b></i>”…

Ég sé hvernig stjörnurnar falla af himnum ofan/ vellíðatilfinning en deyfir ekki doðann
doðann og sorgina yfir að hafa verið þarna/ hafa hrasað og hrapað en ver'enn ekki stjarna……
<br><br><center><b><a href="http://www.feminem.blogspot.com">feminem</a> </b>
<i>aka</i>
<b>bad_devil</