Nú tek ég hljóðnemann úr kassanum og dusta af honum rykið\
Set artifacts í botn, gott vopn til að hrista af mér spikið\
Hip hop, er ekki hægt að hlusta of miki á\
Svo hlustið á mig eða víkið frá\
Ég er einkaeign einn ekki eitthvað sem ríkið á\
Ríkið er sláttuvél en hver og einn sem ei er einkaeign er lítið strá\
Ég er dúfa boðberi breytinga svo ég yfir yfirvaldið skít á\
Þeir eru að reyna að stjórna okkur eins og við séum gúmbátur en þeir hvítá\
Við getum barist og sleppt því að velta\
En við neyðumst ávallt til þess að elta\strauminn\
Rétt eins og við uppfyllum drauminn\
Ei sofandi\
Okkur er sífellt dreymandi\vakandi\
Við finnum aldrei sanna hamingju það er þreytandi\
Allir eru leitandi\neitandi\
Sínum eigin persónum\\
Kaupa hárkollur, háreyðandi reyna sífellt að vera seiðandi\
Tóm leiðindi, nei fríðindi keypt með krónum\\
Við getum komist á toppinn en þar við ekki lengi trjónum\
Þegar að það bætir í vindinn\ ertu að nálgast tindinn\
Það vita fæstir, fæstir vita minna en fjallakindinn\
Þess vegna verðum við að hætta\ að sætta\ okkur við bætta\ sokka\
Sterkari smokka\hæfari kokka\
Því hlutir sem lokka\eru hlutir sem flokka\
Hlutir sem í okkur fokka\
Plokka í heila okkar\
Skipta okkur upp í mismunandi\
Óviðunnandi félagshópa\
Einn yfirflokkinn þekkjum við öll, Evrópa\
Undirflokkur, glæpamenn þeir sem ræna, svíkja, dópa\
Undirflokkur, svefnværir kæruleysis púkar sem skrópa\
Villtar sálir gallaðir heilar sem syrgja\byrgja tilfinningar sínar inni\
Enga væmni ekkert hjarta enginn náin kynni\
Þetta allt út af því að ríkisbubbi nennti ekki að sveifla vinstri hendinni\
Allt þetta út af erfiðri æsku\
Lítilli manngæsku\vonandi fæstu\
Til að skilja að þú gætir verið næstur\
Einhver með vígalegt lýðveldis vald verður æstur\
Skyndilega þú í vítahring læstur\
Því yfirvaldið er allt sem þið haldið\
Því yfirvaldið er allt nánast\
Losti og flest það sem laðar að\
Illskan er þó mest og verst á einum stað\
Vitið þið hvar, viti þið hvað ég held að bandaríski forsetinn\
Sé af illum öflum andsetinn\
Ég veit ekki, en ég giska á að maðurinn sem djöfulinn\