…Mér leiðist.

Skammdegi og próf.

Einn.

umræðusnauður leiðinda vefur, því eins og ég með hið rotna innhalds heilabús míns, hefur engin neitt merkilegt að segja og hvað þá eitthvað skemmtilegt:

Tilganslausir hugarar hver í sínu horni, af hinni manískt sjálfsfróandi internet kynslóð sem mun aldrei læra stafsetningu; ekkert okkar mun stíga upp úr einsleitum tilverufjötrum okkar, rísa upp úr forinni, springa út og verða fiðrildi með heiminn fyrir fótum okkar, og þrívídd val á framtíðina, heldur ríghöldum við í líf sem aumar lirfur, því nú á dögum er slíkt líf þægilegt og sjálfbært;

Þykkir veggir verndandi unglingspúpunar sjá nú fyrir nægri afþreyingu og veraldlegri næringu til að dauðrota allar æðri tilfinningar í okkur, svo raunheimurinn virðist okkur ólífvænlegur með öllu. En staðreyndin er sú að það er kæfandi og níðþröng púpan sem er hægt að murka og kremja úr okkur allan raunverulegan lífsþrótt:

Skilur að lokum ekkert eftir nema lifandi skel fertugs unglings utan um dauðann huga, sem varð aldrei meira en vísir að manneskju.

Bara smá uppbyggileg gagnrýni á okkur öll…

…ætti að fara að læra…

DaC