Yo/
Olga heitir stelpa ein/ hún er alltaf flott og alltaf hrein/ hún lætur typpið á mér vera eins og bein/ hún er ótrúlega falleg/ og í símanum mínum/ heitir hún Olga sæta/ og þú skalt sko gæta/ þín/ að láta ekki eins og svín/ fyrir framan hana/ þú ættir að nota bumbubana/ ef þú ætlar að láta hana/ þig fíla/ ohh, hvað mig langar að kýla/ þá/ sem vilja ekki fara frá/ og leyfa mér ekki að sjá/ þegar að hún gengur hjá/ það er svo mikil samkeppni/ ég vona að ég verði sá heppni/ og fá að fara á böllin/ með henni/ og fá að fara í bíó/ með henni/ og fá að fara heim/ með henni/ því að ég svo hrifinn af henni/ barnið er sjúklega fallegt/ þetta er alveg ótrúlegt/ hvernig ósköpunum er þetta hægt/ að fæða svona fallega stelpu/ hún hlýtur að vera gerð af guði/ hættu þessu puði/ þú lætur eins og þú sért á snuði/ þú veist það vel/ að hún er fallegust/ heitust/ og flottust/ hún er verðandi ungfrú heimur/ pottþétt/ húðin hennar er svo slétt/ og manni langar svo að snerta/ og sitja með henni í kerta/ ljósum/ strjúka í gegnum hennar ljósa hár/ 1000 sinnum fallegri en birgitta í írafár/ plús, hún er svo klár/ í öllu/ allt frá því að dansa til að anda/ ég og hún/ erum fullkomin blanda/ og fyrir hana ég mundi hætta að anda/ ég mundi fara til útlanda/ og berja alla drjóla/ sem rífa kjaft við hana/ ég mundi sjálfum mér bana/ fyrir hana/ yo/ selja banana/ fyrir kanana/ hvern og einn/ hreinn og beinn/ skal ég lofa/ í hvert skipti sem ég fer að sofa/ þá hugsa ég bara um hana/ og þegar ég sef/ þá dreymir mig um hana/ og ég vil ekki vakna/ því það er allt svo miklu betra í draumi/ því þegar ég vakna/ þá er ég þessi aumi/ áttundi bekkingur/ sem verður bara að glápa/ eins og eldgömul sápa/ á hana Olgu/ labba í tíma/ og láta mig dreyma/ eða bara að gleyma/ sem er engann veginn hægt/ æ, ég vildi að hún mundi einu sinni horfa í augun á mér/ ég færi alveg hjá mér/ ég mundi missa vitið/ og í brækurnar skitið/ þið vitið/ svona er maður þegar maður er ástfanginn/ maður situr inni í herbergi/ skrifar nafnið á þeirri réttu/ niðrá blað/ í mínu tilfelli: OLGA/ og fara oft í bað/ á dag/ til að vera hreinn og cool/ og leyfa henni að vinna í pool/ vera svolítið old school/ til að ganga í augun á henni/ og eins og sjálfvirkur penni/ ég skrifa um hana/ og læt eins og ég eigi sjéns/ en það er ekki sjéns/ að ég eigi sjéns/ ég á aldrei eftir að eiga sjéns/ það eru aðrir sem eiga sjéns/ og þeir nota þann sjéns/ og fá að fara á böllin/ með henni/ og fá að fara í bíó með henni/ og fá að fara heim/ með henni/ heppnu gaurar/ ég vildi að þið væruð maurar/ sem ég mundi kremja og lemja/ og hafa olgu fyrir mig einann/ það væri ekki verra/ ég væri heimsins heppnasti herra/ með heimsins fallegustu gellu/ fokk, hvað ég væri heppinn/ en þetta er bara draumur/ ég ennþá aumur/ rauður/ á meiri sjéns í hana dauður/ yo/ ég enda þetta lag/ eins og sauður/ sendi henni kossa/ í gegnum blaðið/ fer með faðir vorið/ og bið guð/ um að gera olgu að minni/ þá kveð ég að sinni/ bíð eftir að þessu linni/ kurupt/ með gellunni þinni/
yo/