Hip Hop kvöld Gauksins, Kroniks(Rás 2) og Budweiser fagna nú ársafmæli sínu og að því tilefni verður haldin allsvaðaleg hip hop veisla á Gauknum fimmtudagskvöldið 18 apríl í samvinnu við Muzik.is.
Að þessu sinni munu íslenskar hljómsveitir ráða ríkjum en þær eru Dj Moonshine a.k.a Dj Cruz, Kritikal Mazz, Bæjarins Bestu og Skytturnar frá Akureyri. Skytturnar eru að spila hér í Reykjavík í fyrsta skiptið en þeir hafa verið að gera það gott á Muzik.is með laginu “Ég geri það sem ég vil” Einnig mun verða haldin “Battle Of The MC´s” en það er rap útsláttarkeppni þar sem rapparar berjast við hvorn annan með orðum og hafa 30 sek hvor til að særa andstæðing sinn. Það mun vera í fyrsta sinn sem slík keppni er haldinn hér á landi en hún hefur átt miklum vinsældum að fagna erlendis og hafa menn eins og Eminem fetað sín fyrst spor í slíkri keppni.
Veislan hefst kl:21 og stendur til kl:01 eftir miðnætti. Aðgangur er 700kr og 18 ára inn.

Þeir sem hafa áhuga á að skrá sig í “Battle Of The MC´s” getið sent mér skilaboð hér á huga.

friður

rawquZ