Ný plata Rappararnir í WU-TANG CLAN munu gefa út nýja plötu fyrir jólin.
Platan gengur undir vinnuheitinu WW2 en efnið af henni er aðalega afgangar frá síðustu plötu þeirra The W. Platan mun koma út 17. desember en von er á smáskífunni Pinky Ring frá þeim á allra næstu dögum.
Einn þeirra Clanara, RZA segir að þeir tóku upp alveg fullt af efni fyrir síðustu plötu svo nóg var eftir í nýja.
“Við tókum upp um 20 lög í Los Angeles og kannski 10 í viðbót í New York. Þegar við vorum við upptökur í LA var rosalegt sólskin og læti svo það verður kannski smá sumar stemmning á plötunni.”