Hip Hop Beef: Part 3 Beef Part III

Mom said that I should grow up and check myself
before I wreck myself, disrespect myself
Put the drugs on the shelf? Nah, couldn't see it
Scarface, King of New York, I wanna be it

-The Notorious B.I.G.



Þá er kominn tími fyrir fleiri frásagnir af árekstrum alræmdu stjarna hip-hopsins frá landi tækifæranna….

2pac vs. The Notorious B.I.G.

Ég eiginlega efast um að einhver rappari hafi meiri beef sögu en 2pac hafði þegar hann var uppi, þó Em og 50 séu kannski á svipuðum slóðum. Held það mótmæli því enginn að hann hafi verið snargeðveikur blámaður. Moldríkur útaf rappinu en samt ennþá að selja dóp og hafði skoðanir á öllu og öllum. Rapparar sem hann dissaði eða beefaði við voru t.d. Biggie, Puff Daddy, Jay-Z, Mobb Deep, LL Cool J, Dr. Dre, Nas og fleiri. Ætla að halda mig við frægasta beefið, 2pac vs. Biggie.

2pac og Biggie voru félagar áður en þeir fóru að beefa, það var þess vegna sem þetta beef varð svona alvarlegt, því það var persónulegt. Biggie var kóngurinn í New York á meðan 2pac var sá harðasti í L.A., báðir gerðu þeir lög um að þeir myndu deyja sem varð hlutskipti þeirra á endanum. Þetta beef fór úr því að verða beef á milli tveggja rappara yfir í að vera á milli plötufyrirtækjanna Death Row vs. Bad Boy og yfir í West Coast vs. East Coast. Fólk var nánast orðið meira spennt að sjá hvort crewið myndi hafa yfirburði í götulögmálunum heldur en í rímunum.

Eins og sagan segir þá var 2pac á leiðinni í upptökuver í N.Y. þegar hann var rændur og skotinn fimm sinnum á meðan Biggie, Puffy og Bad Boy gengið var á hæðinni fyrir ofan. Daginn eftir var 2pac síðan fundinn sekur um að ráðast kynferðislega á kvenkyns aðdáanda og fór í fangelsi. 2pac hafði áður fengið ákæru vegna þess að Biggie og félagar skildu eftir “heitar byssur” á hótelherberginu hans þegar löggan gerði innrás og 2pac sagði ekki til þeirra. Þegar Biggie kom aldrei í fangelsið til 2pacs þá fannst honum hann vera að svíkja sig og varð reiður þegar Biggie, sem hélt því fram að hann hefði ítök neðanjarðar í N.Y. virtist ekkert leggja sig fram við það að komast að því hver hafði skotið 2pac. Svo fóru sumir að dreifa því að 2pac hafi verið nauðgað í fangelsinu sem gerði hann enn reiðari. Það var síðan þegar Suge Knight bauð 2pac að borga hann út í staðinn fyrir að 2pac myndi gangast í lið við hann sem 2pac byrjaði fyrir alvöru að beefa við fyrrum vin sinn hann Biggie.

13 september 1996 (minnir mig) eftir Mike Tyson bardaga var 2pac staddur í Las Vegas þar sem hann réðst á klíkumeðlim í hótelanddyri. Seinna það örlagaríka kvöld keyrði bill upp að 2pac og Suge Knight þar sem þeir sátu í bíl sínum og skutu 2pac til bana. Sex mánuðum síðar, 9. mars 2007, var The Notorious B.I.G skotinn til bana í bíl sínum á umferðaljósum eftir Vibe Magazine teiti í Los Angeles.

Ég verð að viðurkenna að ég veit ekki um mikið af lögum á milli þessara tveggja þannig að ég ætla að koma með brot úr frægasta og besta disslagi sem ég veit af, Hit em up með 2pac, þar sem hann opinberar t.d. að hafa riðið Faith Evans, eiginkonu Biggie, sem gerðist áður en þau tóku saman. Tjekk it..

2pac - Hit 'Em Up

Thats why I fucked your bitch you fat mothafucka

You claim to be a playa but I fucked your wife
We bust on Bad Boys niggas fucked for Life
Plus Puffy tryin' to see me weak hearts I rip
Biggie Smalls and Junior Mafia is some mark ass bitches
We keep on coming while we running for yah jewels
Steady gunning keep on busting at them fools
You know the rules
Little Ceasar go ask you homie how i'll leave yah
Cut your young ass up see yah in pieces
Now be deceased
Little Kim, don't fuck around with real G's
Quick to snatch your ugly ass, off the streets
So fuck peace
….

Now when I came out, I told you it was just about biggie.
Then everybody had to open their mouth with a motherfuckin opinion
Well this is how we gon' do this:
fuck Mobb Deep,
fuck Biggie,
fuck Bad Boy as a staff record label, and as a motherfuckin crew.
And if you want to be down with Bad Boy,
Then fuck you too.
Chino XL, fuck you too.
All you mother fuckers,
fuck you too.
All of y'all mother fuckers,
fuck you, die slow mother fucker.
My fo' fo' make sure all yo' kids don't grow




Cypress Hill vs. Ice Cube

Þegar Ice Cube var að gera kvikmyndina Friday þá var hann búinn að fá lag hjá Cypress Hill til þess að setja á plötuna fyrir myndina. Hann var síðan að hlusta á nokkur lög hjá þeim og leist helvíti vel á eitt lagið og vildi fá það. Cypress ætluðu að nota það sem singúl fyrir næstu plötuna sína svo þeir sögðu nei, Cube fékk að hlusta á það nokkrum sinnum og fór síðan. Síðan gefur hann út lag sem er með nánast sama viðlagi sem skapaði pirring á milli þessara tveggja. Cypress gerði þá No Rest for the Wicked sem var diss á Cube og félaga hans Mack 10 sem var síðan svarað með King of the Hill frá Cube og Cypress kom þá með lag sem hét einfaldlega Ice Cube Killa. Það var reyndar mjög sniðugt lag þar sem Cypress Hill fékk til sín rappara sem hljómar nánast alveg eins og Ice Cube svo það er eins og Cube sé að dissa sjálfan sig og crewið sitt, westside connection. Svo þið náið öllum nöfnum þá eru Cypress Hill: B-Real, Sen Dogg og DJ Muggs og Westside Connection: Ice Cube og Mack 10, reyndar var einn gaur í viðbót en hann var ekki inni í beefinu.

Cypress Hill - No Rest for the Wicked

So many fools swingin from my sack,
Lets talk about the one who had my back!
Down in the west coast, so lemme kick it
To the motherfucker who calls himself wicked!
No rest, no peace! no sleep,
Doughboy rolling down the hill cause its so steep!
Jackson… lemme figure out the name,
Jack cause you be stealing other niggaz game!
But Im the wrong nigga you wanna fuck with
On my dick so hard, now ya wanna suck it!
Unoriginal rap veteran…
The nigga who say he dont steal from his friends!


Ice Cube & Mack 10 - The King of the Hill

I see a joint in your clutch
You're smokin that shit too much
Got your bitch ass touched
Sen Dogg you can't rap from the guts
And B-Real sounding like he got baby nuts

I'm used to a hoe trying to kiss me
Now what gave your bitch ass enough heart to diss me?
You'll come up missing
And Sen Dogg is so wacked he ain't even worth dissin

Load my slugs up
Hey yo back up Cube Dogg we passed that bitch Muggs up
Pull over and let me out this show no sight
And let me show this White Boy what that Westside Connect's like

You pussies can't match my skill
Cause I'm the King Of The Hill!


Cypress Hill - Ice Cube Killa

It takes two of you faggets to get with one of me
Now I'm running up in you hoes with “No Vaseline”
You get addicted
You can take your four W fingers and stick it in Mack 10's ass and lick it
Ice Cube is a thing of the past
If I got no nuts it's because they're still stuck in your ass

You try to remake NWA without Dre and Ren
Dub's cool but you're fuckin' up with Mack 10

My name should be Mack 11
I'm a higher caliber MC
There's no question
Anytime you wanna run up
You get dealt with you get melted
Ice Cube, you better tell'em
Muggs made the best songs on your third album




Fat Joe vs. 50 Cent

Þetta beef á sér ekki mikla sögu svo ég viti til. Í laginu Piggy Bank dissaði 50 Cent nokkra frekar létt. Fat Joe, Nas og Jada Kiss. Nas sagði á tónleikum að 50 Cent væri fake og ég veit ekki hvers vegna 50 dissaði hina tvo. Mér var reyndar sagt nýlega að Fat Joe og crewið hans Terror Squad hafi verið að gera grín af G-unit baksviðs á verðlaunahátíð og þá hafi 50 Cent komið fram á sviðið dissandi þá tilbaka. Fat Joe gerði víst taktinn að Candy Shop með Scott Storch og sagði seinna að hann vildi ekki vera í laginu eða bendla sig við taktinn því það væri of commercial. En kíkjum aðeins á dissin frá 50 cent og síðan á svarið frá Fat Joe sem heitir einfaldlega Fuck 50, sem er alveg tussugott disslag.

50 Cent – Piggy Bank

That fat nigga thought Lean Back was “In Da Club”
My shit sold 11 mill, his shit was a dud
Jada don't fuck with me if you wanna eat
Cause I'll do your lil ass like Jay did Mobb Deep
Yeah homie, in New York, niggas like your vocals
But thats only New York dawg, your ass is local

Kelis said her milkshake brings all the boys to the yard
Then Nas went and tattooed the bitch on his arm



Fat Joe – Fuck 50

But he dont care he stay locked up in the house and shit
Steroid up and he wont come up out that bitch
Is it me or Candy shop sound like magic stick??
In the video this nigga 50 bout to strip
Shakin his ass what the fuck is wrong with thisss nigga
….
Hate it or Love it the Games on top now you jealous of him
When yo shit gonna stop, you CB4
You's a bitch nigga straight outta Locash
LA dont believe him this nigga is so ass
You diss Lean Back said my shit was a dud
Now tell me have you ever seen him up in the club??
Nope…nope….Nope Shorty thats right…
You singin more than ya rappin now 50 that aint right




50 Cent vs. Murder Inc

Lykilpersónur í þessari deilu eru 50 Cent öðru megin og Irv Gotti, Ja Rule og Black Child hinummegin. Þetta er eflaust með harðari deilum sem rappið hefur að geyma og einnig sú flóknasta held ég. Það er mjög erfitt að greina hvað er rétt og hvað er rangt þegar fjölmiðlar eru að tala um þessi mál þar sem mikið er uppspuni og sölubrellur. Það er þó vitað mál að 50 Cent, hans rétta nafn Curtis Jackson, var að selja krakk áður en hann varð frægur. Hann var handtekinn þegar hann reyndi að selja leynilöggu heróín og krakk. Mamma hans var einnig að selja eiturlyf þangað til hún var myrt þegar Curtis var ungur. Á þessum tíma var undirheimakóngur að nafni Kenneth McGriff sem stjórnaði þessu svæði og ýja sumir að því að hann sé ábyrgur fyrir dauða móður hans Curtis. Kenneth McGriff er einnig tengdur Murder Inc. plötufyrirtækinu í gegnum Irv Gotti sem er einn af eigendunum, það er talið að hann hafi jafnvel komið Murder Inc af stað með eiturlyfjapeningum.

Það er ekki víst alveg hvernig þetta byrjaði en samkvæmt Ja Rule þá á 50 Cent að hafa byrjað að gefa út disslag á Ja eftir að Ja sýndi 50 ekki næga virðingu þegar Ja Rule og félagar voru að taka upp myndband í hverfinu þeirra. Eftir það fór allt í háaloft þegar hóparnir á bakvið þessa tvo hittust. 50 Cent hinsvegar segir að félagi sinn hafi brotist inn og rænt bling blingi af Ja Rule og Ja hafi síðan seinna séð 50 heilsa upp á þann félaga og þannig hafi þetta byrjað. Ég læt það vera hvorum ég trúi.

Í mars 2000 var 50 á leiðinni í upptökuver þegar Irv Gotti, bróðir hans og Black child börðu 50 og Black child stakk hann með hníf. Sagan segir að 50 Cent hafi þá fengið nálgunarbann á Murder Inc. gaurana en hann neitar því sjálfur þó skjalið sé til. Rúmum mánuði seinna, 24 maí var 50 Cent síðan skotinn 9 sinnum. Það hefur aldrei komið í ljós hver skaut hann en 50 grunar McGriff um að hafa staðið fyrir skotárásinni. Á þessum tíma var 50 búinn að gefa út lagið How To Rob þar sem hann dissar nánast alla og er að tala um það hvernig hann ætlar að ræna af frægustu rapp og R’n’B stjörnunum, nokkuð gott lag. En þrátt fyrir það þá missti 50 Cent samninginn sinn við Columbia útaf skotárásinni. Það var þá sem Eminem sá fortíðina sem 50 Cent hafði að geyma og lét hann skrifa undir samning við plötufyrirtæki sitt, Interscope Records.

Til að byrja með voru Eminem og Dr. Dre harðir á því að 50 Cent myndi ekki stofna til meiri illinda við Ja Rule og félaga en það breyttist þegar Ja Rule fór að dreifa því hvernig þeir höfðu stungið og lamið 50.

Lög sem hafa farið eitthvað út í þetta beef eru t.d.:
G-Unit – I smell Pussy
50 Cent – Wanksta
50 Cent feat. Eminem & Busta Rhymes – Hail Mary
Black Child – Ferrari Black

Tek bara smá brot hérna…

G-Unit – I smell pussy

Son you smell that? What's that?
I smell pussy. Is that you Irv?
I smell pussy. Is that you Ja?
I smell pussy. Is that you Black?
I smell pussy. Is that you Tah?
Y'all niggas is pussy
I'm ballin' now nigga now watch me
Ain't nothin' you can do to stop me
You niggas get so emotional
You remind me of my bitch.


50 Cent – Hail Mary

Lil' nigga named Ja think he live like me
Talkin' about he left the hospital took nine like me
You livin' fantasies nigga, I been checkin' deposit
When your lil' sweet ass gon' come out of the closet?
….
Black Child, you's a motherfuckin' punk and you'll see me with gloves
Quit scarin' them fuckin' kids with yo ugly ass mug


Blackchild – Ferrari Black (The Real Wanksta)

You knew I was comin, dumpin, who wanted a hundred rounds
Didn't I stab you up? don't make me gun you down
Your whole career's nothin, but a publicity stunt
Until I kill you and give you the publicity you want

I got a lot of killin to do before I die and I ain't got bullets to waste
shot this nigga in the face

Fifty I had a knife, you had a gun
You ain't pop one shot, poked you, you called 911


Jæja held að þetta sé komið í bili. Ef þið getið bent mér á einhver gúdshit lög frá Biggies hlið í beefinu við 2pac endilega skellið þeim í skoðanir.

late
www.massadur.blogspot.com