Hip Hop Beef: Eminem Ble,

Eftir að hafa horft á Beef heimildarmyndirnar er ég búinn að vera að fikta við að gera smá færslur um beef rappheimsins á heimasíðunni minni (www.massadur.blogspot.com), ákvað að skella einni hérna inn og læt fleiri ef það er áhugi fyrir þessu. Ábyrgist ekki að allar upplýsingar séu réttar í færslunni, enda er þetta aðallega áhugamál og gert til gamans. Njótið…

Beef í rappheiminum

Ég er mjög mikill áhugamaður um disslög í rappheiminum. Það er oft skemmtilegra að hlusta á disslög heldur en lög sem fjalla um mellur og eiturlyf, þar sem rappararnir eru með grófari línur og leggja sig fram við að rakka niður óvini sína. Disslög eru samt mjög misjöfn, stundum eru rapparar með hörð lög án þess að nafngreina óvini sína (t.d. Shook Ones með Mobb Deep sem beindist gegn Jay Z þó hann sé ekki nafngreindur) en oft er ekkert til sparað. Hérna eru góðir kaflar úr disslögum sem ég hef hlustað á í gegnum tíðina sem tengjast Eminem..

Eminem vs. Benzino

Benzino er meðeigandi í rappblaði sem heitir The Source. Hann hefur verið í nokkrum rappsveitum og reynt fyrir sér sóló sem rappari en hefur mistekist við allt sem hann hefur gert. Hann dissaði Eminem upp úr þurru í lagi sem heitir Pull up your skirt sem hann setti á plötu hjá sér. Væntanlega til að skapa umtal í kringum plötuna sína til að auka sölu hennar. Auk þess gaf hann plötu Eminem lélega einkunn í tímaritinu The Source á meðan hann gaf plötu sinni hæstu einkunn. Em var ekki par hrifinn af þessu og ákvað að svara fyrir sig. Þess má get að í kjölfar þessa beefs hefur Eminem t.d. gefið út lögin Go to sleep bitch og Toy Soldiers. Þetta er það sem Eminem hafði að segja um málið í fyrsta svarinu sínu..

Benzino - Pull up your skirt
(takmarkað magn af góðum línum)

You ran to your manager, asked him how to handle this
Five shades darker motherfucker you'll be Canibus
No one would care about your complicated rhyme style
Another backpack rapper out of style
Don't let me have to backslap your mom's if you smile
I'm serious, if you ain't 'gon respect her why should I?


Eminem - Nail in the Coffin

slap my mom, slap the fuck out of her
she can't sue you, she wouldn't get a buck out of you
cause your broke as fuck, you suck
you´re a fucking joke , if you was really selling coke
well then what the fuck you stop for dummy!
if u slew some crack
you'd make alot more money than you do from rap
you'll never have no security, you'll never be famous
you'll never know what is like to be rich, life's a bitch aint it



Whitey Ford (Everlast) vs. Eminem

Tvö af bestu disslögum sem ég á eru frá rimmunni á milli þeirra. Ekki alveg klár á því hvernig þetta byrjaði enda eru þeir ósammála um það. Eminem segir að Whitey hafi verið fúll því Eminem sýndi honum ekki næga virðingu þegar þeir hittust á gangi þegar Eminem var að fara að hita upp fyrir Whitey. Whitey segir hinsvegar að Eminem hafi orðið sár þegar hann kom með einhverja rímu um eminem í e-u óþekktu lagi. Röðin á þessum lögum er ekki alveg vituð en Eminem gaf út lagið Quitter sem var ágætt, svo kom Whitey með Whitey's revenge sem er mesta rúst sem Em hefur líklega lent í og Eminem svaraði síðan með I remember sem er alveg tussugott.

Everlast - Whitey's revenge

With your platinum blonde Caesar, you look like a ho
Like M and M stands for Marilyn Monroe
..
I don't do this for the money, yo, I do it for fun
You might hang around some gangstas, but you ain't one
And you won't be slappin' me with no empty gun
Talkin' about a fag but you're the one in drag
And you can't keep your woman from goin' astray
Better run and check your kid for your DNA
I take care of my moms, you get sued by yours
With your corny metaphors about drugs and crack whores
You're a sucker


Eminem - I remember

And I remember when you had your first heart attack.
I was right there laughin' when i heard the news.
I just wish the cardiac would´ve murdered you

What's up witchu? I never fucked witchu, Why would you fuck with me?
Knowin' I could rap circles around you, What ? Is you nuts as me?
Plus I can sing better than you, And I don't fuckin' sing.
And probably play guitar better, And I aint never touched a string.



Dr. Dre vs. Jermaine Dupri

Jermaine Dupri er framleiðandi eins og Dre. Ein stærsta stjarnan sem hann hefur komið á framfæri er Lil Bow Wow. Hann lét það einu sinni flakka í blaði að Dr. Dre væri dottinn úr “rappleiknum”. Dre var í raun kominn í rapppásu og notaði þriðju plötu Eminems til að koma með svar. Þetta hafði Dr. Dre að segja um málið.

Eminem feat. Dr. Dre - Say what you say

I'm a giant, and I ain't gotta move till I'm provoked
When I see you, I'ma step on you and not even know it
You midget, mini-me, with a buncha little mini-you's
Runnin round your backyard swimmin pools
Over 80 million records sold
And I ain't have to do it with 10 or 11 year olds


Eminem vs. Will Smith

Það er í raun ekki hægt að tala um eiginlegt beef í þessu samhengi. Will Smith gagnrýndi í raun rappara fyrir að blóta mikið í textum sínum og Eminem fann sig greinilega knúinn til að svara. Þó las ég að Will Smith hafi dissað Em á nýjustu plötunni sinni en sel það ekki dýrara en ég keypti það.

Will Smith - Freakin it

All you rappers yellin bout who you put in a hearse
Do me a favour write one verse without a curse


Eminem - The Real Slim Shady

Will Smith don't gotta curse in his raps to sell records
Well I do, so fuck him and fuck you too


Þar sem ég gæti eflaust haft þetta endalaust er ég að hugsa um að segja þetta gott. Ég fann síðu á netinu þar sem “óvinir” Eminems eru skilgreindir. Ef ykkur finnst gaman af þessu mæli ég með því að þið tjekkið á þessu http://www.eminem.net/enemies/ … Tek það einnig fram að ég sleppti einu besta disslaginu hans, Girls, sem var diss á Limp Bizkit og Dj Lethal.

Out Nigguhz

late
www.massadur.blogspot.com