Daniel A. Pinero, a.k.a. Dj DP One Daniel A. Pinero, a.k.a. Dj DP One á NASA laugardagskvöldið 18.nóvember!

Ekki missa af heitasta hip hop plötusnúð New York borgar í dag ásamt flottustu breakdönsurum sem komið hafa á klakann!

Daniel A. Pinero eða DP One er einn af efnilegustu Hip-Hop plötusnúðum Bandaríkjanna um þessar mundir. DP One er þrjú elementin uppmáluð þar sem hann er plötusnúður, rappari og breakdansari. Hann er einn af fjórum í hóp sem kallar sig Turntable Anihilists og meðlimur í Rock City Rockers, TCK og Zulu Kingz.

Hip-Hop, R&B, Reggae, House ásamt Freestyle, Breaks, Funk og Salsa eru þær tónlistarstefnur sem DP One kemur á framfæri þegar hann kemur fram. Hann sló fyrst í gegn á hinum víðfræga klúbb í New York, Buddah Bar, fyrir tíu árum síðan. Hann hefur verið pllötusnúður fyrir heimsfræga rappara á borð við The Bad Seed, Medina Green, Don Scavone og Natural Resource ásamt fleirum.

Ásamt því hefur hann deilt sviði með RUN-DMC, Boot Camp Click, Slick Rick, Talib Kweli, Mos Def, Common og M.O.P ásamt fleirum. Hann var resident plötusnúður á Braggin' Rites á mánaðarlegum kvöldum eftir Bug'd Eyez. Einnig hefur hann spilað á stöðum sem og The Skate Key, The Limelight, The Tunnel Downtime, SOB's, Club Ivy og Baby Jupiter.

Auðvelt er að átta sig á því að DP One er einn af heitustu Hip-Hop plötusnúðum heims um þessar mundir og virkilega kraftmikill snúður.

Forsala aðgöngumiða fer fram á Midi.is og kostar miðinn einungis 1500 krónur.
D.P. One á NASA v/Austurvöll þann 18. Nóvember 2006 kl. 23:00.