Já, niðurstöður úr nýrri könnun voru birtar nú fyrir ekki svo löngu. Þessi könnun hefur staðið yfir í mánuð eða svo, það var ekki bara spurt um rappara en ég ætla aðeins að fjalla um það hér. Það sem er merkt sem “Staðreynd” er bara einfaldlega staðreynd og þar sem stendur “kosið” hefur verið kosið, ég tók m.a. þátt í þessu.
Þessi könnun var gerð innan bandaríkjana fyrir utan spurninguna “Flestir aðdáendur yfir allan heim”.

Ríkasti rapparinn í dag: Staðreynd
1. Eminem
2. Snoop Dogg
3. 50 Cent

Flottasta húsið: Kosið
1. Kanye West
2. Eminem
3. Snoop Dogg

Grófasti rappari allra tíma: Kosið(50%)/5 fagmenn velja(50%)

Eminem var aðeins valinn, fyrir allar tilfinningar sem hann hefur sært og allt sem hann hefur dissað heldur hann þessu.

Rappari á mestri uppleið: Kosið
Kanye west
Rappari á mestri niðurleið: Kosið
50 Cent

Flestir aðdáendur yfir allan heim: Kosið
1. Eminem (77% atkvæða)
2. Snoop Dogg
3. Wu Tang Clan

Flestir diskar seldir: Staðreynd
1. Eminem
2. Snoop dogg
3. Method Man

Besta rap groupan: Kosið
1. D12
2. Wu-Tang Clan
3. G-Unit

Flest grammy rap verðlaun fengin: staðreynd
1. Eminem
2. Kanye West

Mest kærði rappari allra tíma: Staðreynd

Eminem, þetta tekur hann með stórmun, hann hefur dissað margt, sýnt miklar tilfinningar í lögum sínum og heillað fólk með textum sínum.
En stundum gengur hann aðeins og langt, og er talað um blótsyrðin og margt fleira í lögunum hans, lagið “Fack” hefur nú verið í sviðsljósinu frá því hann hætti.
Hann er einning mest kærði tónlistamaður sem hefur verið uppi, ef ekki bara mest kærða mannvera á jörðu, en við skulum nú ekki hugsa svo stórt. :)

Þar höfum við það, Eminem virðist spóla hverri spurningunni á fætur annari, þar sem hann hefur náð gífurlegum vinsældum á sínum rap stíl.
Það vekur athygli að eminem hefur oftast verið kærður af öllum röppurum, en þrátt fyrir það á hann mestan pening af þeim öllum.
Hann sagði sjálfur í viðtali að hann er að spóla inn mörgum milljónum vikulega því það er alltaf verið að kaupa vörurnar hans, og það verður eitthvað sem heldur áfram. Þrátt fyrir að hann eigi ekki stærsta aðdáendahópinn hérlendis á hann marga erlendis, það er eitthvað sem fólk þarf að sætta sig við.
Ég þoli ekki svona “þessi fkn suckar”, það hafa allir sinn smekk og það er bara staðreynd sem mun aldrei breytast. Kannanir eru til að sjá hver fílar mest, eða hver gerir mest etc.

En svona eru niðurstöður þennan dag í dag, við vitum ekki hvernig þær verða eftir 1-2 ár, það getur svo margt breyst á svona litlum tíma, það er alveg ótrúlegt. Þetta hefur verið birt í New York times og fleiri blöðum í Bandaríkjunum, ætti ekki að fara framhjá mörgum sem búa þar, m.a. mér, ætli þetta fari ekki að koma i blöðin þarna á klakan ef það er ekki enn komið ;)

Annars svona til að enda þetta finnst mér ‘Em’ eiga þetta skilið, það hefur margt gerst hjá honum að undanförnu, besti vinur hans skotinn, skildi við konuna sína og mamma hans að deyja. Svo er þetta ábyggilega fínn gaur.
Takk fyrir mig.
Plzzz