Goðin frá New York, dúóið EPMD eru ekki á því að hætta. Eftir fjórar klassískar plötur, gefnar út á árunum 1988-1992 og tvær fínar plötur, “Back In Business” ('97) og “Out Of Business” ('99) hafa þeir Erick og Parrish ákveðið að koma aftur eftir tveggja ára fjarveru. Þeir eru nú í stúdíóinu vinnandi að nýjustu plötu sinni “We Mean Business”. Á plötunni verður bara nýtt efni, unnið á þessu ári og þeir eru búnir að gera 7 lög og eitt þeirra kemur víst á white label í næstu viku. Þeir sem hafa enn áhuga á þessum snillingum, endilega hafa augun opin.