Þetta verður ekki löng grein hjá mér og því er ég í vafa að hún verði samþykkt en hún hefur mjög góðan tilgang engu að síður.
Með þessari grein ætla ég að hvetja alla aðdáendur hip hops á þessari síðu að nefna nöfn á þeim evrópsku hip hop tónlistarmönnum sem þeir þekkja. Rosa erfitt að leita eftir þeim á netinu t.d. vegna þess að frakkar skrifa t.d. bara á frönsku og þannig áfram og áfram.

Ég get nefnt strax einn sem ég byrjaði að hlusta á nýlega. Mjög góður og mæli með honum…. hann heitir Nikkfurie de La Caution og mæli með laginu Thé à la menthe.
Getið nálgast það á þessari slóð..http://www.emp3world.com/to_download.php?id=84745

en allavega endilega komið með stöff og ágætt að hafa fyrir reglu að sá sem svarar mér t.d. copy-pastar minn tónlistarmann og setji hann í lista…

dæmi: ég segi Mr. X svo kemur næsti og talar um Mr.Z þá setur hann þetta svona

Mr.X
Mr.Z…. og til að auðvelda mönnum þetta er best að nefna tónlistarmanninn alltaf neðst í hverju svari og því enda ég á þessu.


Nikkfurie de La Caution