Wu Tang Clan rapparinn, Ol Dirty Bastard hefur verið dæmdur til tveggja til fjögurra ára fangelsisvistar fyrir neyslu og vörslu á krakki. Rapparinn sem oft hefur komist í kast við lögin hefur nú setið í gæsluvarðhaldi í nokkra mánuði sem dregið verður af dómnum. Þá var honum gert að sæta heilbrigðis og geðrannsókn og var hann settur á sérstaka sjálfsmorðs vakt þar sem óttast var að hann reyndi að taka sitt eigið líf