Allt um eminem Þetta er tilturlega nýtt, hérna sérðu nánast allt um eminem.


Hélstu að þú vissir allt um Eminem? þá gæti eitthvað af þessu fyrir neðan að koma þér á óvart!

Eminem sem réttu nafni heitir Marshall Bruce Mathers the third, er ein mesta ógnun sem tónlistarheimurinn hefur átt! Hann er eins og allir vita einn besti rapparinn frá upphafi, fær samt sem áður oft að heyra það frá öðrum röppurum að hann eigi ekki að rappa þvi hann er hvítur og svertingjar eigi einungir að rappa. En hann hefur svo sannarlega afsannað það að rapp sé einungis svertingja-tónlist líkt og Elvis gerði á sínum tíma með sína tegund af tónlist. Eminem er fæddur í Kansas City, 17. október 1972, en alinn upp í úthverfi Detroit (8 Mile). Hann gekk í Lincoln High School en lauk ekki námi. Margar sögur hafa verið í gangi um hvernig Eminem var uppgvötaður og segir ein þeirra t.d að Dr. Dre hafi fundið Demo-tape á gólfinu hjá félaga sínum eftir party og önnur að hann hafi uppgvötast í Rap Battle, þetta er bæði ekki rétt þó hann hafi verið vel virtur og mjög góður í rapp-bardögum. Sannleikurinn er sá að félagi Eminem's úr D12 Proof kom kappanum á framfæri með því að kynna hann fyrir núverandi umboðsmanni sínum Paul Rosenberg sem keypti demo-töku af Eminem á 6 dali og eftir langa leit hjá þeim spurðist hann einfaldlega út og endaði á borðinu hjá Dr. Dre. Aðspurður segir Paul Rosenberg að þetta hafi þetta verið besta fjárfesting uppá 6 dali enda hefur hann grætt fúlgu eftir þetta.

Foreldrar Eminem's eru , Deborah Briggs Mathers og Marshall Mathers annar. Ég myndi nú ekki taka þau til fyrirmyndar þar sem faðir hans gekk út frá þeim þegar Eminem var einungis 6 mánaða gamall og Debbie alki, eiturlyfjasjúklingur og bara hreinn viðbjóður! Enda ekki mikil móður og föðurást af hálfu Eminem's enda það alveg skiljanlegt.
Þegar Eminem var 16 ára gamall kynntist hann stúlku að nafni Kimberly Anne Scott og bjó hún bara á götunni og tóku þau Eminem og móðir hans hana að sér í hjólhýsið hjá sér. Kim og Eminem voru alltaf sundur og saman og enduðu með því að gifta sig rétt eftir að fyrsta breiðskífa Eminem's “Slimshady LP” kom út árið 1999 eftir útgáfu hennar vann Eminem sín fyrstu 3 Grammy Verðlaun fyrir Besta Rapplagið (My Name Is), Nýliði ársins og besta rapp-platan.

Eminem er fæddur eins og áður var tekið fram þann 17. október 1972 og er þar með Vog í skjaldamerkinu. Eminem er einnig í rapp-hljómsveitinni D12 eins og flestir vita og stendur D12 bæði fyrir Detroit-12 og Dirty Dozen. Til að byrja með voru meðlimirnir 7 en eftir að Bugz var skotinn til bana í garðveislu breyttu þeir nafninu úr Dirty Dozen i D12, allir bera þeir tattoo-ið D-12 í minningu við 7 meðliminn Bugz. Ef þið eruð að velta því fyrir ykkur hvað 12 stendur fyrir þá er það því þeir eru 6 en segjast allir vera geðklofar og telja því hvern meðlim tvisvar.
D-12 hefur gefið út 2 breiðskífur þær Devils Night og D12 World, sú fyrrinefnda inniheldur smelli eins og Puple Pills og Fight Music en sú síðarnefnda, My Band, How Come og 40oz.

Eminem hefur gefið út 4 breiðskífur og eru þær allar hreint út sagt frábærar og hefur hann einnig verið að sópa til sín verðlaunum fyrir þær. Sú fyrsta Slimshady LP sem kom út árið 1999 inniheldur t.d “My Name Is” sem skaut honum á stjörnuhimininn og tókst honum einnig að sjokkera heiminn með þessu lagi! Þessi plata inniheldur smellina “My Name Is”, “Guilty Consiences” og “I Just Don't Give A Fuck”.
Önnur breiðskífa kappans “Marshall Mathers LP” Var ennþá betri og inniheldur hún hinn ódauðlega smell “Stan” ásamt, “The Real Slimshady”, og “The Way I am.” Og sló þessi plata ÖLL sölumet í USA seldist held ég í hátt í 2 milljónum eintaka fyrstu vikuna í USA, einnig var platan tilnefnd til Grammy-verðlaunanna sem besta plata ársins og er það í fyrsta skipti sem rapp-plata kemst undir þann flokk.
Sú þriðja “The Eminem Show” var ekki síðri og enn hélt hann áfram að slá sölumet. Þessi plata vara meira unnin í persónulegum málum t.d gagnvart móður sinni, fjölskyldu, fyrrverandi eiginkonu og dóttur. Sú plata inniheldur smellina “Cleaning Out My Closet”, “Without Me”, “Sing For The Moment” og “Superman”. Einnig er að finna lag á plötunni sem heitir Hailey's Song og er tileinkað blóðdóttur hans en einnig ættleiddi hann frænku sína sem heitir Alaini.
Sú fjórða er nýkomin út og ber hún titilinn “Encore” hreint frábær plata hér á ferð og inniheldur hún smelli eins og “Just Lose It”, “Mockingbird”, “Like A Toy Soldiers”, og “Mosh”. Mosh er að mínu og margra annarra textalega séð besta lagið þar sem hann gagngrýnir George W. Bush harðlega um sérstaklega Írak stríðið segir að þetta sé tilgangslaust og að ungt fólk sé að deyja af tilefnislausu. Eminem vill hann augljóslega úr forsetastólnum enda kaus hann forseta í fyrsta skiptið 2. nóvember siðastliðinn en þar hafði Bush samt sem áður sigur.

Eminem hefur ekki verið þekktur fyrir að hlífa neinum í textum sínum og hafa tónlistarmenn og hljómsveitir á borð við: Moby, Ja Rule, Benzino, Nelly, Nsync, Backstreet Boys, Christina Aguilera, Britney Spears, Jennifer Lopez, Will Smith, P. Diddy, Limp Bizkit, Inzane Clown Posse, Pink, Elvis, MC Hammer, Madonna og nú síðast Micheal Jackson fengið að finna fyrir því. Útfrá því hefur honum verið að berast morðhótanir og sagði hann sjálfur í viðtali að eina skiptið sem hann tæki af sér skothelda vestið væri þegar hann sefur og þegar hann fer í sturtu.

Eminem eignaðist sitt fyrsta barn með Kim hana Hailie þann 25. desember 1995 og er Eminem með fullt forræði yfir henni eftir að Kim var handtekin fyrir þónokkru með kókaín í förum sér og dæmd í 90 daga fangelsi og 90 daga meðferð sem hún strauk úr og var dæmd í 30 daga fangelsi í viðbót fyrir það og aftur í 90 daga meðferð. Eminem hefur ekki vandað henni kveðjunnar, og er hann með tattoo í kringum naflann þar sem stendur “Kim Rot In Pieces” þau skildu árið 2001-2 þar sem Eminem komst að framhjáhaldi hennar og held ég að “Kim” lag nr. 16 á Marshall Mathers LP eða lagið “Puke” á Encore lýsi best áliti hans á henni.

Eminem er þekktur fyrir að halda frábæra tónleika, en að eigin sögn segist hann enn verða stressaður rétt áður en hann stígur á svið. Eminem á sitt framkomu-atriði eins og margir aðrir tónlistarmenn og hans atriði er að hann kemur klæddur í smekkbuxur með hokkýgrímu og vélsög.

Marshall notar nafnið Eminem af tveimur ástæðum, aðallega þar sem upphafsstafirnir í nafni hans er M og M og einnig þar sem uppáhaldssúkkulaðið hans er M&M. Hann á sér annað listamannanafn og er það Slimshady og kviknaði hugmyndin af því þar sem Eminem sat á klósettinu og var að hugsa skrýtin og óhugnarleg hljóð og þá kviknaði bara Slimshady! Ýmindin af þeirri persónu er er Múmía sem skorin er á púls. Eins og hann sagði í laginu “Cum On Everybody” á “Slimshady LP” ….“And if you will see me on tv I'll probably be dressed up like a mummy with my rist slit”….

Eminem lék einnig í kvikmyndinni 8 mile sem er lauslega byggð á ævi hans. Hann leikur hreint út sagt frábærlega í þeirri mynd í hlutverki sínu “Jimmy Smith Junior” og fékk frábæra dóma! Eminem fékk óskarsverðlaun fyrir titillag myndarinnar “Lose Yourself”. Myndin halaði inn mörgum milljónum dollara er ekki alveg með tölurnar á hreinu en þetta var ein aðsóknamesta kvikmyndahelgi allra tíma þegar hún var frumsýnd. Eminem er að leika nú í 3 öðrum kvikmyndum einni þar sem hann á að leika ósigraðann 22 ára úkraínskan boxara, svo er það hryllingsmynd sem heitir Devils Night þar sem allir meðlimir D12 fara með aðalhlutverkin og einnig önnur mynd þar sem þeir fara allir með hlutverkin en veit ég ekki hvað hún heitir en á að vera um götuna sem þeir ólust uppá!

Hér kemur eikkað useless information um hann:

Eminem er 172 cm
Uppáhaldsdrykkurinn hans er Mountain Dew
Uppáhaldsmatur er Mexikanskur kjúklingur og Burritos
Uppáhaldsskyndibiti er Burger King, M'cdonalds og Wendy's
Hann notar skó nr. 42
Hann er örvhentu
Plzzz