Viðtal við J. Rawls Það er ekki oft sem erlendar taktrímssveitir heiðra landann með nærveru sinni og því fagnaðarefni að fá hér inn ferskan andvara frá henni Ameríku. Lone Catalysts er ung og efnileg sveit, skipuð þeim J. Rawls, sem sér um hljóm og takta og J. Sands, sem sér um rímið. Fyrsta breiðskífa sveitarinnar, sem ber einfaldlega nafnið Hip Hop, kom út fyrir stuttu og þeir félagar hafa einnig átt í samstarfi við nokkra þekkta rapplistamenn eins og t.d. Mos Def, Talib Kweli og Hi-Tek.
Vert er og að geta þess að J. Rawls samdi taktinn í laginu “Brown Skin Lady” sem er að finna á meistarastykki Mos Def & Talib Kweli, Black Star, en sú plata er af fjölfróðum talin vera eitt það besta sem út hefur komið í hipp-hoppi. Platan var gefin út árið 1999 af hinu virta Rawkus merki.

Þetta er fyrstu tónleikar Lone Catalysts utan Bandaríkjanna en það er íslenska Hipp-hopp sveitin Forgotten Lores sem flytur þá kappa inn ásamt hinum hipp-hoppvænu samtökum TFA (www.tfa.is)


“Alvöru” tónlist
Að sögn Rawls búa þeir félagar í tveimur borgum og halda nánu sambandi í gegnum rafpóst. "Sands býr í Columbus en ég í Pittsburgh. Það var sameiginlegur vinur að nafni Buka sem kynnti okkur er við vorum í skóla saman í Cincinnati. Þannig að við nefndum útgáfuna okkar eftir honum [B.U.K.A.].“
Hann segir markmiðið með útgáfunni vera að hjálpa listamönnum í Miðvestur-Bandaríkjunum að koma sér á framfæri því það sé ekkert grín.

”Þetta er miklu auðveldara ef þú ert frá New York, L.A. eða Atlanta. Svo þarftu helst að vera með myndband undir höndunum, flotta sportbíla og glingur. Við erum ekkert hrifnir af svoleiðis hlutum. Við erum ekkert stórir í Bandaríkjunum og njótum meiri virðingar t.d. í Evrópu og Asíu.“

Hann segir það þó ekki vera neina sérstaka stefnu að vera neðanjarðarsveit.

”Við erum neðanjarðar vegna þess að við erum ekki komnir með samning. Við viljum að allir geti heyrt tónlistina okkar en það er að sjálfsögðu ekki mögulegt nema þú fáir stóran samning.“

Rawls segir þá leika hipp-hopp af gamla skólanum og er umhugað að búa til ”alvöru“ tónlist. ”Hipp-hoppið hefur þróast út í það að snúast um peninga og hið ljúfa líf. Hipp-hoppmenningin er runnin frá þeim sem “áttu ekki” en nú eru margir innan þess geira sem “eiga” svo að tónlistin er farinn, kannski eðlilega, að snúast um það.“

Spurður um áhrifavalda nefnir hann A Tribe Called Quest og De La Soul og frumherja eins og t.d. Funky Four Plus One. Hann segir að samstarfið við Mos Def og Talib Kweli hafi vakið á þeim athygli enda eru þeir með virtari hipp-hopplistamönnum samtímans.

”Ég var mjög gæfusamur að fá þetta tækifæri. Að hitta Kweli og afhenda honum segulbandið mitt. Þetta eru náungar sem eru að gera þetta frá hjartanu.“

Rawls segist ekkert vera sérstaklega mikið inni í evrópsku/skandinavísku rappi en hipp-hoppgeirarnir í Danmörku og Svíþjóð hafa t.a.m. verið mjög virkir og frjóir undanfarin ár.

”Það fer lítið fyrir þessu í Bandaríkjunum,“ segir hann. ”Því sem ég hef kynnst er í gegnum útgáfuna Groove Attack í Þýskalandi [sem gaf út einyrkjaskífu Rawls, The Essence Of]. Þeir halda mér upplýstum og þar kynntist ég t.d. Looptroop og Subterranean sem ég vissi nú ekki að væru frá Íslandi fyrr en fyrir stuttu!"


Gróska
Íslensk hipp-hoppmenning er full af grósku um þessar mundir og verða tónleikarnir ágætis þing að því leytinu til því íslenskar sveitir og skífuskankarar munu koma fram með sveitinni.
Dagskráin verður á þessa leið:

Í kvöld spila Lone Catalysts á Spotlight ásamt íslensku sveitunum Souls of Orpheus og Forgotten Lores. Black Fist kemur og fram með Souls of Orpheus. Staðurinn verður opnaður kl. 23, aðgangseyrir er 850 kr. og aldurstakmark 20 ár.

Á morgun, laugardag, munu Lone Catalysts svo spila í félagsheimilinu Drangey (í Stakkahlíð, á milli Tónabæjar og Blindrafélagsins). Einnig munu Forgotten Lores og O.N.E. troða upp. Staðurinn verður opnaður kl. 21, aðgangseyrir er 850 kr. og aldurstakmark 16 ár. Skífuskankarar öll kvöld verða B Ruff, Intro, MAT, Total Kayoz og Magic.

-www.mbl.is-