Athletic Mic League.. Þeir Tres Styles, Grand Cee, Buff, Vital, 14 KT og Texture eru allir rapparar sem byrjuðu að rappa saman fyrir 7 árum á körfuboltavellinum í Ann Arbor, New Jersey, (þaðan eru þeir allir) eftir að hafa verið búnir að rappa saman í smá tíma stofnuðu þeir Athletic Mic League, þeir gerðu Demo Tape árið 1998 sem var kölluð “The Thrill Of Victory, The Agony Of Defeat” en var aldrei gefin ut, en ég er með hana undir höndunum og er þetta meistaraverk og er hin mesta synd að þetta skuli ekki hafa verið gefið út, en hinsvegar er nýkomin út remix diskur af demo tape'inu sem heitir “The Thrill Is Gone” og fæst á www.sandboxautomatic.com þessi diskur er mjög góður, og inniheldur mörg lög af demo tape'inu svo og remix af þeim lögum, plús ný lög, og mæli ég eindregið með að allir tékki á þessum disk..
one..
o_T