Jæja, hvar er þessi grein á hugasvæðinu ? Mikið rétt, hugi.is/hiphop. HIPHOP…
Einhver hérna sem veit hvað hugtakið hiphop þýðir ? eða hefur pælt í því. Þegar litið er yfir þetta vefsvæði sér maður einungis raptengt efni, sem er allt i lagi svosem, en þessi síða heitir ekki hugi.is/rap.
Fólk á það til að rugla þessum tveimur hlutum saman, rap og hiphop, þegar þú segir Rap, þá segiru MC og DJ jafnvel. Þegar þú segir hiphop, þá segiru : MC, DJ, graffiti, breakdance, scratch og allt í þeirri stefnu.
Ég er ekki að skrifa heila grein yfir svona smámunum til að vera með leiðindi eða skítskap, heldur vildi ég gjarna sjá aðeins meira af efni sem tengt er öðrum hlutum hiphop-menningarinnar en bara rappi. Þá mætti til dæmis setju upp korka tengda hverju efni fyrir sig o.s.f.v.

Hvað segið þið ?
“we are brothers