B Ruff - Massiveness vol.2 Dj B Ruff úr Forgotten Lores er nú búinn að gefa út sinn annan mixdisk, Massiveness vol.2. Diskurinn inniheldur 27 lög, þar á meðal er lag með Forgotten Lores og freestyle með Class B og Magse. Önnur lög eru m.a. Travellin Man með Mos Def, Train Of Thought með Reflection Eternal, Part Of The Game með Lone Catalysts og einnig lög með Apani B, Common O.C o.fl.
Lagavalið er frábært og skiptingarnar flæða vel í gegnum diskinn.
Gripurinn fæst í Þrumunni, Exódus, Brim og Jónas á Milli. Allar nánari upplýsingar um diskinn má finna á www.tfa.is þar sem einnig er hægt að heyra hljóðdæmi.

Einkunn 8.8/10


…peace !