xxx Rottweiler hundar hafa ekki verið starfandi í nokkurn tíma en síðasta okkar þeirra var heimildarmyndin Rokkstjörnur Íslands sem kom út á DVD fyrir síðustu jól. við í xxxR höfum nú tekið íslenska tónlistarmarkaðin með trompi því að sveitinn hefur fengið tvær gullplötur og eina platínuplötu. þann 11. ágúst mun hinn heimsfrægi rappari 50 cent troða upp í egilshöll ásamt G-unit. aldrei áður hefur jafn stórt rappnafn stigið á klakan og má búast við húsfylli því að þetta er eitthvað sem margir hafa beðið eftir. það má segja sem svo að xxx Rottweiler eigi stóran þátt í því að hiphop sé mjög vinsælt á íslandi og er það því ekki úr vegi að láta xxxR hita upp fyrir kappan. ásamt xxxR mun ekki síður vinsælt band hita upp en það eru félagar okkar í Quarashi. þegar haft var samband við okkur og við beðnir um að hita upp lá það því beint við að nýtt lag yrði gert og bandið myndi koma saman aftur. nú á næstu dögum mun nýtt lag líta dagsins ljós og er einnig myndband í smíðum við það lag og verður það tilbúið í kringum mánaðarmótin. það verður engin fyrir vonbrigðum sem mætir á tónleikana 11. ágúst því að við munum gera mannskapinn vel heitan áður en 50 cent stígur á svið. við getum lofað því að þetta verður flottasta sjó sem við höfum lakt í.