Undercover magazine TFA hefur hafið innflutning og sölu á breska tónlistartímaritinu Undercover. Í tímaritinu er fjallað mestmegnis um Hiphop tónlist frá Bandaríkjunum og Bretlandi, bæði neðan- og ofanjarðar tónlist. Tímaritið hefur komið út 13 sinnum og er af mörgum talið vera besta Hiphop tímaritið í dag. Í blaðinu má finna aragrúa af viðtölum, plötudóma, smáskífudóma, góðar tónlistarfréttir, pólitískar greinar og pistla auk ýmislegs annars. Aðrar tónlistarstefnur sem teknar eru fyrir í blaðinu eru m.a. Reggae, Drum n Bass og Soul.
Með hverju blaði fylgir ókeypis diskur með tónlist og myndefni. Tónlistin á disknum tengist alltaf efni blaðsins.

Í nýjasta eintakinu eru viðtöl við nokkra aðila sem hafa hva mest mótað stefnur meginstraums Hiphop tónlistar í dag; Neptunes þríeykið, Missy Elliot og Timbaland. Einnig má finna viðtöl við rapparana Slug, Mr. Complex, Yungun, Twista, Wordsworth, Vast Aire, Cypress Hill, Kurtis Blow, Beenie Man o.fl., grein um Def Jux útgáfuna, viðtal við graffarann Keen og ýmislegt annað.
Á disknum sem fylgir má m.a. finna lög með Missy Elliot, Twista, Mr. Complex, Anthony Hamilton, Murs og Timbaland. Einnig er að finna ljóð með Ms Dynamite um Bush og Blair, myndefni frá Undercover o.fl.

Blaðið kostar 1.000 krónur og fæst í verzlunum Brim. Þá geta þeir sem búa utan höfuðborgarsvæðisins pantað sér eintak á póstfanginu tfa@tfa.is (gefa þarf upp fullt nafn og heimilisfang).

Njótið vel ..og fylgist með Hiphop.is !!