Redman's Crib Ég veit ekki hvað er langt síðan enn allavega einhvern tímann í MTVCrib var sýnt húsið hans Redmans. Fyrir þá sem ekki vita hver Redman er þá er það frábær rappari sem er búinn að vera gera margt gott í kringum árin eins og t.d. Dare iz a Darkside of fleiri diska. Hann er líka búinn að vera gera mikið með Method Man but anywho ég ætlaði ekki að fjalla um söguna hans heldur húsið hans.

Ég var að sjá MTV þáttinn þegar þeir fóru í “Redmans Crib” að skoða húsið hans. Það sem kom mér rosalega á óvart var að hann á ekkert risahús, hann er ekki í neinni svítu eða neitt svoleiðis heldur er þetta ósköp venjulegt hús. Þetta er 2 hæða hús á Staten Island í “the hood”. Hann er búinn að eiga heima á Staten Island í nokkur ár og jafnvel eftir að hann varð frægur þá hélt hann áfram að eiga heima þarna. Að vísu hann flutti úr pínulítilli íbúð í 2 hæða hús og er búinn að eiga heima þar í einhver tíma. Inni er allt eins og herbergi hjá “the average teen” sem sagt allt í rusli.

Jújú hann á alveg flotta hluti þarna inni enn hann vildi ekkert vera að flytja frá “the hood” eða ef ég quota hann “I ain't like the brother runnin' to tha hills buying big cribs away from the hood. I like this apartment because it's right in the hood and it's nice”!
Hann vill ekki vera eins og flestir aðrir rapparar sem maka það, rappa um hvernig það var að búa þarna og flytja síðan strax í burtu þegar þeir voru orðnir ríkir. Hann hefði getað verið löngu fluttur í burtu enn eins og hann segir; “ I can move up, and get somethin' bigger, way bigger than this but I like stayin right here in the crowd and keep me movin'”

Ok flestum er örugglega alveg sama og eruð að hugsa, “Hverjum er ekki f***ing sama!?” Enn ég vildi skrifa um þetta þar sem mér fannst þetta dálítð flott. Gaurinn hefur peninga til að flytja enn gerir það ekki af því hann vill frekar vera ennþá með sínum líkum.
Ykkur finnst þetta kannski heimskulegt að ég skuli skrifa um þetta enn mér finnst ekkert að því að skrifa um eitthvað sem að mér finnst flott.

Kveðja
*boggi35*(StonedRaider)