Einsog margir vita þá er hinn magnaði rappari Sage Francis á leiðinni til Íslands og mun troða upp á 2 tónleikum.

Fyrri tónleikarnir verða næstkomandi föstudag í norðurkjallara MH.
Auk Sage verða þar nokkrir íslenskir rapparar, m.a SOS og JónM.

Verður gaman að fá að sjá snillinginn loksins með eigin augum en fyrir þá sem kannast ekki við hann þá mæli ég með eftirtöldum lögum:

* Sage Francis - All word no play
* Sage Francis - Bounce
* Sage Francis - Majority Rule
* Sage Francis - Inherited Scars
* Sage Francis - Gun Godz