Staðurinn er Norðurkjallari Menntaskólans við Hamrahlíð, föstudaginn 30.jan. Húsið opnar klukkan 2030. Það eru einungis 500kr inn og ekkert aldurstakmark.

Það ríkir mikil leynd yfir kvöldinu og það eina sem ég get uppljóstrað núna er að það eru tvær hljómsveitir að hita upp fyrir battlið sjálft. Kvöldið verður ferskleiki uppmálaður og er skömm í að láta sig vanta. Hver ætlar að vera næsti NKJ-meistari

14 einstaklingar tóku þátt í fyrra sem er met, og býst ég við betrii þáttöku í ár.

Skráning í síma 6987765 og á staðnum, það er til mikils að vinna því það eru vegleg verðlaun fyrir þann sem vinnur.

NKJ-Meistarinn er tign sem færir rapparar upp á hætta plan. HR. Kaldhæðinn vann í fyrra og lauk þar með battl-ferli sínum sem var afar farsæll því að nú var takmarki hans náð.