Hermigervill  -  Lausnin STYTT ÚTGÁFA:

Hip Hop/raftónlistar bræðingurinn \“Lausnin\” eftir Hermigervil
er komin í verslanir: Skífuna Laugarvegi, Þrumuna og 12
Tóna.

Heyrið eitt lag af disknum á hiphop.is, eða:

http://www.hiphop.is/data/mp3/Hiphop/Hermigervi ll_-_Eggjah
vita.mp3

Verð: 1500 kr.

TÉKK IT ÁT!


Greinin í heild:

Nú er platan ,,Lausnin\“ með hip hop- og
raftónlistarmanninum Hermigervli komin út og er fáanleg í
Skífunni laugavegi, Þrumunni og 12 tónum. Þetta er fyrsta
plata Hermigervils, en hann hefur verið iðinn við tónsmíðar í
ríflega 4 ár og afrekað margt: Annað sæti í raftónlistarkeppni
Huga.is, margvíslegt samstarf við rappara og söngvara,
útgáfa á safnplötu, þó nokkur útvarpsspilun á muzik.is
(blessuð sé minning hennar), og nú síðast sigur í
hæfleikakeppni framhaldsskólana fyrir hönd MR svo snert sé
á því helsta. Síðastnefnda keppnin var haldin í Austurbæ 22.
nóvember, en nokkuð lítið fór fyrir henni.

Þette eru þó flestir ómerkilegir og smávægilegir sigrar, ef
sigra skal kalla. Nú er hinsvegar runnin upp tíð sannkallaðs
stórsigurs Hermigervils! Með Lausnina að vopni, hrynjandann
fyrir skjöld og ómstríðann eld í augum mun tónlist Gervilsins
lýsa upp tilveru og blása gleði í hjörtu og roða í kinnar allra
taktelskra drengna og stúlkna.

Platan samanstendur af rúmlega 60 mínútum af órappaðri
hip-hop tónlist. Hermigervill er ólíkur mörgum taktsmiðum
sem nú semja tónlist hér á fróni að því leyti rætur hans liggja í
raftónlistinni. Þar af leiðir að tónlist hans er oft á tíðum
ómstríðari og flóknari að uppbyggingu en allment tíðkast í hip
hop-i. Ekki það hann tapi sér í útidúrum - takturinn líður
látlaust í bakgrunni og mun meiri áhersla er lögð á
hljóðsmölun (sömplun) en notkun hljóðgervla. Eins og segir í
bæklingi disksins eru notaðar yfir 120 vínylplötur við gerð
Lausnarinnar og þar af er ekki ein einasta \”sampl\“-plata eða
\”breaks\“-safnplata (maðurinn býr ofaní plötukassa. Svo talar
hann tungum og reitir hár sitt sé minnst á ,,break-safnplötu
svindlara\”).

Hægt er að heyra 2 af 16 lögum Lausnarinnar á hiphop.is,
lögin ,,Eggjahvíta\“ og ,,Hristikista\” sem endurspegla nokkuð
vel þann hljóðheim sem Hermigervill hefur skapað.

Allir sannir, harðkjarna aðdáendur Hermigervils eiga nú þegar
disk, þar eð þeir eru allir með tölu vinir og vandamenn. Því er
mikil þörf á nýjum aðdáendum, útvíkkun hópsins nauðsynleg
og hvet ég ÞIG kæri lesandi til að gefa Lausninni góðar gætur,
hlusta á lögin í netheimum og ef þér líkar vel hugleiða
alvarlega að punga út 1500 krónum fyrir heilsteyptann pakka
af háklassa hip hop-i svo Gervillinn greyið geti kveðið niður
sárasta skortinn og jólapakkaleysið, sjálfstæð plötuútgáfa er
jú engin peningauppspretta.