Eftir ansi langa bið er nú loksins kominn vettvangur hér á Huga fyrir íslenska rappara til að koma sér á framfæri.

Nú geta óþekktir sem og þekktir listamenn komið sér á framfæri með því að senda inn lög og leyfa öðrum að njóta.

Þeir sem vilja koma sínu lagi á framfæri geta sent email á danielrun@simnet.is með laginu og upplýsingum um flytjanda/titil lags.

Tilvalið fyrir þá sem eru að fara að gefa út plötur að gefa fólki tóndæmi svipað og Mezzías hefur verið að gera að undanförnu eða þá sem vilja fá að heyra álit annarra hip hop áhugamanna á því sem þeir hafa verið að gera.

Athugið að það er EKKI leyfilegt að senda inn lög með öðrum en sjálfum ykkur - ef þú átt lag með MC HappaGlappaThug(dæmi) þá máttu ekki senda það inn nema hann hafi gefið leyfi fyrir því sjálfur - ef þú sérð lag frá þér inni á kubbnum og þú hefur ekki gefið leyfi fyrir því sendu mér skilaboð og ég kippi því út um leið - virðum höfundarréttinn.