Smá pæling sem ég ætla deila með ykkur Viðtöl við þekkta knapa hefur verið mitt hugarást síðan eftir LM 2006.

Ég var að velta því fyrir mér hvort að notendur séu almennt til í að fá á prent (á huga að sjálfsögðu) viðtal við þekkta knapa, tamningarmenn og ræktendur?

Því að þá var ég að hugsa ef allir samþykkja, búa til kork sem inniheldur viðtöl við þessa einstaklinga. Og vonandi koma gullkorn frá þeim sem við munum nýta okkur í daglegu amstri í hestamennskunni.

Segið mér ykkar álit á þessu. :) Ég vil endilega vita hvað ÞIÐ viljið. :)

Kveðja Lilja Bjé..