Virkni í desember! Jæja, við bættum okkur talsvert í desember og hífðum okkur úr 74.sæti í 61.sæti, sem mér finnst bara frábær árangur :D

Að þessu sinni vorum við með 19.836 flettingar eða 0,30% af heildarflettinum Huga, en í nóvember vorum við bara með 14.460 flettingar eða 0,23% af heildarflettingunum.

16 greinar komu inn í desember, þar á meðal er greinin Ætternisleikurinn eftir Regzu í heitum umræðum eins og er, en í nóvember voru greinarnar 11 og í október einungis 5!

Eigum við ekki bara að halda áfram að bæta okkur? ;) Það eru núþegar komnar 3 greinar í janúar, höldum þessu nú áfram :)