Sælir hestahugarar :)

Mér datt í hug að gera smá tilraun með “hestahugara vikunnar”, gæti verið gaman.. þannig að ég setti saman nokkrar spurningar, hér eru þær:

Hestahugari vikunnar:

Nick á Huga?
Aldur?
Kyn?
Hvað áttu marga hesta?
Hver er uppáhalds hesturinn þinn?
Hver er uppáhalds hestaliturinn þinn?
Hver er uppáhalds gangtegundin þín?
Hvað varstu gömul/gamall þegar þú byrjaðir í hestum?
Hvað finnst þér skemmtilegast við hestamennskuna?
Hvað finnst þér leiðilegast við hestamennskuna?
Hvað hefurðu dottið oft af baki?
Hefurðu keppt á hestamóti?
Eitthvað annað sem þú vild koma á framfæri (t.d. skemmtileg saga) ?

Þeir sem hafa áhuga bara endilega senda mér skilaboð með svörum og ég mun setja þau upp á síðuna.

Hestakveðja, sigrun24 ;)