Jæja, nú hef ég læst báðum ‘rifrildisgreinunum’ sem snerta samskipti hestamanna við aðra vegfarendur reiðstíga og nágrennis þeirra. Af minni hálfu verða engar greinar um sama efni samþykktar í bráð.

Ég geri mér grein fyrir að við stjórnendurnir erum ekkert of vinsælir í augnablikinu en þar sem ég hef aldrei reynt að vera vinsæl þá megið þið segja hvað sem ykkur lystir, bara ekki ganga yfir strikið og þá mun ég kannski taka tillit til einhverra athugasemdanna. ;)

Ætla að ná einhverjum svefni núna og skrifa kannski eitthvað meira sem tengist þeim æðislega mórali sem nú virðist vera á þessu áhugamáli. Jibbý! ;)

Endilega njótið góða veðrisins! Sumarið er loks í nánd með öllu sem því fylgir. :)
=)